Skora á stjórnvöld að stofna til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár 6. janúar 2006 09:30 MYND/Hari
Aðalfundur Vélstjórafélags Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að stofna hið fyrsta til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár með tilheyrandi hliðarráðstöfunum. Ísland er eina landið innan Evrópu sem ekkert hefur gert til þess að tryggja að héðan séu gerð út kaupskip með íslenskum áhöfnum þrátt fyrir þá staðreynd íslensk þjóð á allt sitt undir öflugum siglingum að og frá landinu. Vélstjórafélagið segir að áframhaldandi aðgerðarleysi stjórnvalda í þessu máli mun hafa þær afleiðingar að innan fárra ára mun áratuga þekking og reynsla farmanna heyra sögunni til. Vorið 2005 skipaði samgönguráðherra í samráði við fjármálaráðherra starfshóp til þess að fara yfir stöðu mála hvað varðar skráningu kaupskipa á íslenska skipaskrá. Starfshópurinn skilaði áfangaskýrslu í nóvember s.l. þar sem dregnar eru saman upplýsingar um hvernig staðið er að þessum málum hjá helstu siglingaþjóðum Evrópu. Þar kemur fram að allar þessar þjóðir hafa gripið til þess að stofna alþjóðlega skipaskrá með tilheyrandi eftirgjöf á sköttum farmanna. Sérstaklega er árangur Íra tíundaður í skýrslunni en á árabilinu 1990-2000 hafði írski flotinn minnkað um 50%. Árið 2002 stofnuðu Írar alþjóðlega skipaskrá með tilheyrandi hliðarráðstöfunum. Frá sama tíma hefur Írski flotinn stækkað um 70%. Þannig mætti áfram telja um breytingar á rekstri kaupskipa hjá þeim þjóðum sem stofnað hafa til alþjóðlegrar skipaskrár með tilheyrandi hliðarráðstöfunum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Nýjustu tölur í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Sjá meira