ESB menn deila um aðild Íslands að ESB 19. maí 2006 18:45
Tveir hæst settu menn Evrópusambandsins gáfu í dag misvísandi yfirlýsingar um hugsanlega aðild Íslands að sambandinu. Yfirmaður stækkunarmála sagði að Ísland gæti orðið næst í röðinni, á eftir Rúmeníu og Búlgaríu, en framkvæmdastjóri ESB sagði síðdegis að ekki væri hægt að horfa til fleiri landa en þeirra sem þegar hafa sótt um aðild. Á morgunverðarfundi Evrópumálastofnunar í Brussel í morgun var Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála, spurður hvernig hann sæi landamæri Evrópusambandsins fyrir sér. Hann sagðist telja landamærin í suður nokkuð ljós, einnig í vestur og líklega í norður. Vandinn væri hversu langt þau ættu að ná í austur. En svo bætti hann við, óaðspurður, að Ísland eða Króatía gætu komið næst, líklega eftir 2009 þegar búið væri að samþykkja nýja stjórnarskrá og stokka upp fjárlög sambandsins. Eftir að alþjóðlegar fréttastofur greindu frá málinu í dag sá aðalframkvæmdastjóri ESB, Jose Manuel Barroso, ástæðu til að slá á puttana á félaga sínum í framkvæmdastjórninni því hann notaði tækifærið í heimsókn til Kaupmannahafnar í dag til að draga úr væntingum um inngöngu Íslands. Barroso sagðist ekki sjá fyrir sér inngöngu fleiri ríkja en þegar væri verið að semja um. Um Ísland sagði hann: "Að sjálfsögðu nýtur Ísland virðingar í Evrópu og ég er viss um að almenn viðbrögð yrðu jákvæð ef Íslendingar vilja ganga í sambandið." En hann bætti við að hann hefði engar óskir heyrt frá Íslendingum um að þeir hefðu áhuga á að gerast aðilar. Reuters fréttastofan sá hins vegar ástæðu til að minna á að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefði spáð ESB aðild Íslands fyrir árið 2015 - en miðað við yfirlýsingar æðstu ráðamanna ESB um málið í dag eru menn tvístígandi um málið í Brussel.
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Fleiri fréttir Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Sjá meira