Einn Íslendinganna aðili að öðru stóru fíkniefnamáli 18. apríl 2006 12:30 MYND/Vísir
Einn Íslendinganna þriggja sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna umfangsmikils fíkniefnamáls kom líka við sögu í stóru fíkniefnamáli árið 2004 en var ekki ákærður. Síðla sumars árið 2004 fundust átta kíló af amfetamíni falin í loftpressu sem flutt var inn með fraktskipinu Dettifossi frá Hollandi. Níu manns sátu í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna málsins en fjórum þeirra var sleppt. Einn Íslendingur var framseldur frá Hollandi vegna málsins en hann og annar Íslendingur voru handteknir ytra. Sá síðarnefndi var ekki framseldur þar sem hann var ekki talinn tengjast innflutningnum en við húsleit í Hollandi þar sem hann dvaldi fannst eitt kíló af amfetamíni og tuttugu kíló af maríjúana. Hollenska lögreglan hafði það mál til rannsóknar en ásamt Íslendingnum tengdist málinu Hollendingur sem bjó í íbúðinni sem húsleitin var gerð í. Nú hefur Íslendingurinn hins vegar verið handtekinn vegna málsins sem upp komst á skírdag en þar fundust, samkvæmt heimildum, á milli tuttugu og þrjátíu kíló af amfetamíni og hassi. Óstaðfestar heimildir herma að Hollendingur sem nú situr í haldi íslensku lögreglunnar sé sá sem Íslendingurinn bjó hjá á sínum tíma úti í Hollandi. Íslendingurinn og Hollendingurinn, sem hvorki voru framseldir né ákærðir í málinu 2004, sitja því nú í gæsluvarðhaldi. Íslendingurinn sem um ræðir var hins vegar framseldur hingað til lands á sínum tíma vegna hvarfs Valgeirs Víðissonar. Lögreglan í Reykjavík fer með rannsókn málsins sem nú er til rannsóknar eftir að fíkniefni fundust falin í bensíntanki á BMW-bifreið. Lögreglan kom að þremur mannanna þar sem þeir voru að tæma fíkniefnin úr bíl í iðnaðarhúsi á Höfðanum í Reykjavík á fimmtudagskvöld en fjórði maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi er eigandi bílsins. Einn mannanna var dæmdur í níu ára fangelsi árið 2000 fyrir þátt sinn í stóra fíknaefnamálinu svokallaða og var hann því á reynslulausn eftir að hann hafði afplánað um helming fangelsisvistarinnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira