Ritstjórar DV fóru af brautinni 17. janúar 2006 15:12 MYND/Einar Ólason
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um 365 fjölmiðla. „Árið 2002 kom ég í fyrsta sinn að rekstri fjölmiðla. Við sáum að það var framtíð í þeim hugmyndum sem voru uppi um rekstur á dagblaði sem skyldi dreift ókeypis á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu og að slíkur rekstur gæti skilað viðunandi afkomu. Í upphafi settum við eina milljón í Bónus og sú fjárfesting gekk upp. Við settum 50 milljónir í Fréttablaðið og sú fjárfesting gekk líka upp. Undanfarin misseri höfum við byggt upp fjölmiðlafyrirtækið 365 ásamt um 900 öðrum hluthöfum. Grunnurinn að því var Fréttablaðið, en svo urðu aðstæður þannig að okkur gafst tækifæri til að bæta við reksturinn. 365 fjölmiðlar eru í dag framsæknasta fjölmiðlafyrirtæki landsins þar sem innanborðs er kraftmikið og gott starfsfólk. Reksturinn hefur gengið að óskum og er byggður á þeirri hugmyndafræði að um sé að ræða fjölmiðlafyrirtæki sem sinnir öllum tegundum fjölmiðlunar; fréttum, afþreyingu, upplýsingu og skemmtun. Fyrirtækið rekur sjónvarps- og útvarpsstöðvar, gefur út tímarit og dagblöð auk þess að halda úti vefsvæðum. Þetta hefur gefist vel og fjölbreytt rekstrarform skapar grunninn að því að hægt er að reka stórt fjölmiðlafyrirtæki sem skilar afkomu sem hefur ekki áður þekkst í rekstri fjölmiðla á Íslandi. 365 fjölmiðlar eru dótturfélag Dagsbrúnar hf. sem skráð er í Kauphöll Íslands. Fyrirtækið skilar uppgjörum á þriggja mánaða fresti í samræmi við þær leikreglur sem gilda í Kauphöllinni. Þar birtast uppgjör sem sýna að við erum að ná árangri. Við erum að ná árangri sem hefur reynst öðrum fjölmiðlum ógerlegt hingað til. Það er því fjarri lagi að einhver sé að borga með fjölmiðlum 365 þótt slíkt kunni að eiga við aðra fjölmiðla hér á landi. Allar tölur í uppgjörum Dagsbrúnar sýna annað. Fjölmiðlar og stjórnmálamenn, sem hafa að undanförnu fjallað mjög ítarlega um rekstur 365 fjölmiðla, geta því leitað þangað áður en þeir fullyrða annað um reksturinn. Nú að undanförnu hafa fjölmiðlar 365 verið heimfærðir á mig persónulega eða það fyrirtæki sem ég er í forsvari fyrir. Það hefur orðið til þess að fjöldi manna hefur leitað til mín og óskað eftir því að ég beiti mér fyrir því að breyta efnistökum fjölmiðla í eigu 365. Þessar beiðnir hafa verið af ýmsum toga. Reka ritstjóra og ráða annan, leggja niður dagskrárþætti fjölmiðla, skrúfa niður í Ingva Hrafni, henda út Silfri Egils og svona mætti lengi telja. Þeir sem hafa óskað eftir slíku við mig, vita að það hefur engan árangur borið. Ritstjórn fjölmiðla er ekki á minni könnu. Ég kem að rekstri fjölmiðla út frá arðsemisforsendum og að þeir peningar, sem ég lagði til verkefnisins í upphafi, ávaxti sig. Ritstjórar DV fóru hins vegar út af brautinni. Þeir tóku poka sinn og tóku ábyrgð á ritstjórnarstefnu sinni. Aðrir mættu taka ákvörðun þeirra sér til fyrirmyndar." Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group hf. undirritar yfirlýsinguna.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira