Áreiti og pústrar eru nánast daglegt brauð 19. júní 2006 08:00 Hópslagsmál Lögreglumenn að uppræta hópslagsmál í miðborg Reykjavíkur að næturlagi um helgi. Þeir verða líklega oftast fyrir áreiti í miðbænum.
Lögreglumenn sem starfa í miðbænum um helgar lenda undantekningalítið í átökum þar sem þeir þurfa að yfirbuga menn. Svo er það undir hælinn lagt hvort lögreglumennirnir verða fyrir áverkum, segir Páll Winkel, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna. Hann segir hrindingar, pústra og jafnvel hrækingar á lögreglumenn vera daglegt brauð. Lögreglumenn standa nú í baráttu fyrir bættu starfsumhverfi. Hafa þeir sent dómsmálaráðherra, Birni Bjarnasyni, erindi í fjórum liðum þar sem beðið er um úrbætur, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Í nýlegri viðhorfskönnun meðal lögreglumanna kemur fram að meira en helmingur allra lögreglumanna á Íslandi hefur orðið fyrir líkamsmeiðingum eða 54 prósent þeirra. Í sömu könnun kemur fram að 64 prósent lögreglumanna hafa orðið fyrir ofbeldi eða hótunum sem þeir hafa tekið alvarlega. Loks kom í ljós að í 41 prósenti tilvika hafði hótunum eða öðru alvarlegu áreiti verið beint gegn fjölskyldum lögreglumanna. Páll segir óvenjumörg ofbeldistilvik gegn lögreglumönnum hafa komið upp á síðustu vikum. Þá eru þessar eftirfarir að verða nánast daglegt brauð með tilheyrandi hættu, bæði fyrir almenning og ekki síður lögreglumenn, segir Páll. Meðaltals refsing fyrir slíkt brot er lág fjársekt. Maður veltir fyrir sér hver skilaboðin séu eiginlega? Hann segir lögreglumenn ræða það sín á milli að þeir séu óöruggir við ákveðnar aðstæður þegar mikill mannfjöldi komi saman. Inntur eftir því hvað lögreglumenn vilji gera til þess að bregðast við þeirri stöðu sem nú sé uppi í starfsumhverfi þeirra segir Páll að að sumu leyti verði ekki við þetta ráðið. Þetta er agaleysi íslensku þjóðarinnar og drykkjuskapurinn í miðbæ Reykjavíkur. En við viljum að þeir einstaklingar sem veitast að lögreglunni, jafnvel ítrekað eins og til eru dæmi um, hljóti viðunandi refsingu.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira