Lífið

Sendir þér steikina heim

Þröstur Már Sverrisson eigandi justeat.is vill auðvelda fólki að panta sér fjölbreyttan mat heim í hús.
Þröstur Már Sverrisson eigandi justeat.is vill auðvelda fólki að panta sér fjölbreyttan mat heim í hús. MYND/Teitur

Þeim sem eru orðnir þreyttir á gourmet-veislum hátíðanna stendur ýmislegt annað til boða í kringum áramótin. Vefsíðan justeat.is gerir notendum sínum auðvelt að panta sér mat frá veitingahúsum í borginni, og býður jafnframt upp á heimsendingarþjónustu.

„Hugmyndin er að fólk geti séð matseðla veitingahúsanna inni á síðunni hjá okkur og pantað matinn beint í gegnum netið," útskýrði Þröstur Már Sverrisson, eigandi síðunnar, sem hefur verið virk í eitt og hálft ár.„Við byrjuðum með heimsendingar fyrir svona níu mánuðum. Það var svo lítið úrval af heimsendum mat í Reykjavík," sagði hann, en einnig er hægt að leggja inn pöntun í nýopnuðu símaveri justeat.is.

Steik í sófanum? Framboðið á justeat.is er fjölbreytt, enda af mörgum matseðlum að velja.MYND/Valli

„Það eru alls 34 staðir inni á síðunni og mikil fjölbreytni. Fólk getur pantað sér báta, kebab, steikur, taílenskt … sagði Þröstur. Opnunartími hjá justeat fer eftir opnunartíma veitingastaðanna og gerir það einnig um áramótin. „Svo eru líka margir sem panta í gegnum okkur en sækja sjálfir," sagði Þröstur. „Þá sleppur fólk við að hanga í símanum og þarf ekki að muna aragrúa af númerum," bætti hann við. Allar nánari upplýsingar má nálgast á síðunni sjálfri, en þegar hafa 6500 notendur skráð sig til leiks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.