Fróðastir á Fréttablaðinu 15. desember 2006 12:00 Þórarinn og Steinþór höfðu sigur næsta auðveldlega í fyrri umferðinni en Blaðið veitti þeim harða keppni í seinni umferð. MYND/Páll
Á miðvikudagskvöld tókust blöðin hart á í því sem skiptir máli þegar blaðamennskan er annars vegar: Að vita. Logi Bergmann Eiðsson stóð fyrir bráð-skemmtilegu pressukvöldi þar sem tekist var á í spurningaspilinu Meistarinn. Fréttablaðið hafði vitanlega sigur en hin blöðin stóðu sig prýðilega: Blaðið, DV og Morgunblaðið. Loftið var rafmagnað á efri hæð búllunnar Grand rokk við Smiðjustíg. Þangað hafði hinn spurningaglaði sjónvarpsmaður Logi Bergmann Eiðsson boðað lið á vegum blaðanna til keppni. Mættu fjögur lið til leiks - fulltrúar Fréttablaðsins, Mogga, Blaðsins og DV. Atið fólst í því að keppa í nýju spurningaspili, Meistaranum. Spyrillinn var sjálfur Logi Bergmann Eiðsson sem stjórnaði keppninni af miklu öryggi. Þeir sem mættir voru til að takast á voru þeir Þórarinn Þórarinsson og Steinþór Helgi Arnsteinsson fyrir Fréttablaðið, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Árni Helgason fyrir Moggann, Andrés Magnússon og Brynjólfur Þór Guðmundsson fyrir Blaðið og Kormákur Bragason og Friðrik Indriðason fyrir DV. Skemmst er frá að segja að Fréttablaðið vann keppnina örugglega. Þeir Þórarinn og Steinþór rúlluðu með léttum leik upp fyrri umferðinni. „Ég vil nú meina að úrslitin hafi verið ráðin bara um leið og við gengum inn í húsið," segir Þórarinn og er ekki með neina uppgerðar hógværð. En í seinni umferð veittu reyndar þeir á Blaðinu Þórarni og Steinþóri harða keppni. Sem kom viðstöddum nokkuð á óvart því í fyrri umferðinni voru þeir Andrés og Brynjólfur með allt niðrum sig - eins og sagt er. Undir lokin voru liðin hnífjöfn og spennan rafmögnuð. En á elleftu stundu höfðu Fréttablaðsmenn sigur er þeir svöruðu rétt spurningunni um hver leikstýrði nýlegri kvikmynd um ofurmennið Hulk. Þar má segja að þeir hafi báðir verið á heimavelli, þessir annars víðfróðu menn, Þórarinn og Steinþór, enda báðir miklir bíóböffar. Svöruðu Ang Lee og úrslitin voru ráðin. „Þetta var mjög skemmtilegt. Spilað samkvæmt svokölluðum varíanti. Sem þýðir að reglunum er breytt reglulega. Nýjar leikreglur kynntar," segir Logi Bergmann sem er mjög ánægður með hvernig til tókst. „Mikilvægt að prófa spilið á hópi bessservissera. Og sjá að það virkar vel í þá. Það fundust mér mikil meðmæli með spilinu." Logi Bergmann Eiðsson stjórnaði hinni hörðu keppni af miklu öryggi. Og skaut inn á milli bröndurum eins og honum einum er lagið. .. DV-mönnum hljóp kapp í kinn og höfðu á orði að hallað hefði á þá þegar spurningarnar sem Logi valdi voru annars vegar. . Sigurvegararnir þiggja verðlaun úr hendi Skarphéðins Guðmundssonar sem skipulagði keppnina ásamt Loga. .
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira