Ástralinn Wigan víngerðarmaður veraldar í ár 14. desember 2006 09:00 Andrew Wigan hélt glæsilegt „masterclass” vínnámskeið í Þjóðmenningarhúsinu í vor. Á myndinni sést hann á milli feðganna Dougs og Peters Lehmann.
Íslandsvinurinn Andrew Wigan var á dögunum valinn víngerðarmaður ársins. Verðlaunin hlaut hann í annað sinn. Nafnið Andrew Wigan hringir eflaust fáum bjöllum í hugum flestra vínáhugamanna. Hann er þó einn þeirra víngerðarmanna í heiminum sem hvað lengst hafa náð í sínu fagi. Ástæðan fyrir því að nafn hans er ekki þekktara er einkum sú að hann er ekki einn þeirra víngerðarmanna sem framleiða vín undir eigin nafni og verða heimsfrægir í krafti vörumerkjanna. Hann er ekki af aldagamallli vínfjölskyldu á borð við Torres, Antinori, Drouhin eða Rothschild. Né hefur honum tekist að verða frægur á nokkrum áratugum eins og Gallo eða Robert Mondavi. Þetta fræga fólk kann hins vegar svo vel að meta hann að það veitti honum fyrir réttum mánuði einhver virtustu verðlaun vínbransans þegar hann var valinn víngerðarmaður ársins í International Wine & Spirits Competiton í Lundúnum.Hundtryggur aðstoðarmaðurÞað sem gerði verðlaunin enn merkilegri er að Wigan hlaut þau í annað sinn, nokkuð sem er nánast óþekkt. Enn meiri athygli vakti að einungis eru þrjú ár síðan hann hlaut þau í fyrsta sinn og þannig átti það að vera nánast ómögulegt að vinna þau aftur fyrr en fennt væri yfir fyrra afrekið. Menn vilja helst ekki veita verðlaunin í áskrift. Andrew Wigan hefur verið aðalvíngerðarmaður fyrirtækis hins svipmikla Ástrala Peters Lehmann frá stofnun og haft síðasta orðið um alla þá 27 árganga vína sem Lehmann hefur sent frá sér. Lehmann stofnaði fyrirtækið vegna þess að hann vildi ekki svíkja bændurnar í Barossa-dalnum þar sem hann býr en það hafði verið fyrirætlan fyrrum vinnuveitenda hans. Hann er sauðtryggur sínu fólki og það er endurgoldið því hann hefur haft sama lykilstarfsfólk frá upphafi og Wigan verið hundtryggur aðstoðarmaður hans.Í sömu keppni var Peter Lehmann valið víngerðarfyrirtæki ársins. Að auki fékk Lehmann verðlaun fyrir besta riesling vín keppninnar auk þess sem hvorki fleiri né færri en ellefu önnur vín frá honum fengu ýmist gull, silfur eða bronsverðlaun í sínum flokkum.International Wine & Spirits Competiton er virtasta keppni heims þar sem víngerðarmenn og framleiðendur velja það besta úr vínheiminum. Vínin eru blindsmökkuð til að gæta hlutleysis auk þess sem efnainnihald þeirra er greint nákvæmlega en þau þurfa að uppfylla ströng skilyrði um framleiðsluaðferðir og innihald til að hljóta verðlaun. Yfir 5.000 vín voru tilnefnd í keppnina í ár og samkeppnin gríðarlega hörð.Meistaranám í ÞjóðmenningarhúsiAndrew Wigan heimsótti Ísland síðastliðið vor og hélt svokallaðan „masterclass“ í Þjóðmenningarhúsinu. Var það einkar glæsilegur fyrirlestur og smökkun á mörgum bestu árgöngum sem hann hefur búið til. Sum gæðavínanna eru með skrúfutappa, nokkuð sem er tabú meðal margra gæðaframleiðenda. Ég spurði hann hvort hann hygðist nota skrúfutappana á allra bestu vínin og sagðist hann óhræddur við það.„Við víngerðarmennirnir myndum vilja loka sem allra flestum flöskum með skrúfutöppum ef við fengjum einhverju ráðið. Víngerð í dag er komin á þann gæðastall að vínin eru alveg eins og þau eiga að vera þegar þeim er átappað. Menn hafa haft áhyggjur af því að bestu vínin missi þá öldrun sem verður við loftskipti í gegnum korktappa en það er smá loft undir skrúfutappanum og vínin munu þroskast þótt öldrunin verði hægari. Við viljum fyrir alla muni gera meira en vinir mínir í sölu- og markaðsdeildinni vilja fara hægt í sakirnar enda eru ennþá fordómar í gangi gagnvart skrúfutöppum.“
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira