Hudson slær í gegn 13. desember 2006 13:30 Jennifer komst í úrslit í þriðju seríu af American Idol en datt snemma út þegar þangað var komið.
Jennifer Hudson heitir nýjasta stjarna Hollywood, en hún fer með eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Dreamgirls sem hefur gert það afar gott í Bandaríkjunum á haustmánuðum. Jennifer kom fyrst fram í þriðju seríu af sjónvarpsþættinum American Idol, þar sem hún komst áfram í tíu manna hópinn en féll svo úr leik stuttu síðar. Óhætt er að segja að Jennifer hafi nú náð meiri frama en sigurvegari keppninnar, en margir gagnrýnendur spá að frammistaða hennar í kvikmyndinni muni tryggja henni tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, en nú um helgina lenti hún í öðru sæti í flokknum besta leikkona í aukahlutverki þegar kvikmyndaverðlaun gagnrýnendasamtaka Los Angeles voru veitt. Sagði meðal annars söngvarinn Elton John að kynþáttur stúlkunnar hafi ráðið ferð þegar hún féll úr Idol, en hann telur að Bandaríkjamenn hafi síður viljað svartan sigurvegara tvö ár í röð, en Ruben Studdard vann keppnina árið áður. Allt kom þó fyrir ekki og ung stúlka að nafni Fantasia vann keppnina. Kvikmyndin Dreamgirls er endurgerð á samnefndum söngleik frá árinu 1981 og rekur hún sögu stúlknasveitar á Motown- árunum og hvernig þær hægt og rólega ná heimsfrægð með öllum þeim vandamálum sem því fylgir. Ásamt Jennifer leika í kvikmyndinni söngkonan Beyoncé Knowles, Eddie Murphy, Jamie Foxx og Danny Glover. Er sagt að Jennifer gefi Beyoncé ekkert eftir á hvíta tjaldinu, hvorki í leik né söng, en segir Jennifer sjálf að það hafi verið undarlegt að leika við hlið Beyoncé þar sem hún hafi verið hennar helsti aðdáandi um árabil. Dreamgirls er fyrsta kvikmynd Jennifer og alveg örugglega ekki sú síðasta.
Mest lesið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Frægustu mágar landsins Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Tónlist Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Fleiri fréttir Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Sjá meira