Pelsar ekki lengur munaðarvara 3. desember 2006 14:00 Verðlagið og vinsældirnar fara vaxandi með árunum og eru þeir dýrustu flíkur á Íslandi í dag. MYND/Getty
Loðfeldir, mokkakápur og selskinnsjakkar eru dýrustu flíkur í sem hægt er að fá á Íslandi í dag. Vinsældir þeirra hafa farið vaxandi með árunum og eru kaupmenn sem selja slíkan vöru sammála um það að batnandi efnahagur í landinu spili þar inní. „Ég panta loðfeldina mína frá París og sel ég alltaf hvert eitt og einasta stykki upp fyrir jólin enda er fallegur loðfeldur á óskalista hverrar einustu konu fyrir jólin," segir stórkaupmaðurinn Sævar Karl, en loðfeldirnir í hans búð eru á verðbilinu 200.000-600.000 krónur og því dýrustu flíkurnar í búðinni. „Loðfeldir eru fyrir karlmenn til að gefa konunum sem þeir elska í jólagjöf, segir meira en þúsund orð," segir Sævar Karl glaður í bragði. Loðfeldir eru ekki lengur munaðarvara heldur eru þeir búnir að ryðja sér rúms innan tískuheimsins og eru búðir með notaðan fatnað einnig að selja loðfeldi á minni pening fyrir almúgann. Þessa stundina eru loðfeldir heldur ekki bara fyrir kvenmenn því karlpeningurinn er að kveikja á þessari tískubólu og Eggert Jóhannsson feldskeri segir að karlar séu nú að bætast í hóp viðskiptavina sinni í vaxandi mæli. Helstu ráðamenn og viðskiptajöfrar þjóðarinnar hafa verið að láta sjá sig klæddir í loðfeldi og selskinnsjakka upp á síðkastið. „Rétt í þessu var ég að selja hjónum frá Hollandi sitt hvorn loðfeldinn," segir Eggert en segir að karlarnir séu hrifnari af selskinnsjökkunum og mokkakápunum. Útlendingar eru stór hluti af viðskiptavinum Eggerts en þá eru feldirnir sérpantaðir fram í tímann. Verðbilið á loðfeldum er allt frá 200,000 og upp úr öllu valdi. Samkvæmt heimildum blaðsins er dýrasti loðfeldurinn í einni búð bæjarins á 1.200.000 krónur en ef verið er að sérpanta eða sérsauma getur verðið farið upp úr öllu valdi. Eggert gengur svo langt að segja að þau verð séu ekki prenthæf. Það er meira að segja þannig að búðir með svona dýran fatnað eru undanskyldar almennum reglum um verðmerkingar í búðargluggum því verðið þykir það mikið að ekki er ráðlagt að flagga því. Eggert Feldskeri segir að bæði karlmenn og konur ganga í loðfeldum og mokkakápum nú til dags sem er afturhvarf til fimmta áratugarins þegar flestir karlmenn gengu með hatt og staf og skörtuðu fínustu pelsum. . Kalli í Pelsinum Karl J. Steingrímsson er eigandi búðarinnar Pelsinn sem selur aðeins loðfeldi. fréttablaðið/heiðaSævar Karl segir að loðfeldirnir sem hann pantar frá Paris seljist alltaf upp fyrir jólin.MYND/PB .
Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Sjá meira