Simma í Idol boðið öruggt þingsæti 2. desember 2006 16:00 Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins þykir forkólfum Framsóknarflokksins ekki seinna vænna en að draga Simma á flot og inn á þing. „
Ég vil ekkert tjá mig um þetta mál,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem grallarinn og spaugarinn Simmi í Idol. Fréttablaðið hefur fyrir því áreiðanlegar heimildir að Simma hafi verið boðið öruggt þingsæti fyrir næstu kosningar. Simmi hefur látið til sín taka í tengslum við ýmis verkefni fyrir Framsóknarflokkinn í gegnum tíðina; kom ið að vel heppnaðri kosningabaráttu fyrir síðustu kosningar, verið innsti koppur í búri í kosningamaskínu Björns Inga Hrafnssonar fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og lesið inn á auglýsingar fyrir Framsóknarflokkinn svo eitthvað sé nefnt. Ef til vill er það til marks um ákveðna krísu Framsóknarflokksins og mannafæð að leitað var til Simma því hann hefur ekki haft nein áform um pólitískan frama í náinni framtíð. Í samtali við Fréttablaðið segist hann þó ekki vita hvað verði í þeim efnum. Hann harðneitaði að staðfesta að þetta tilboð hafi verið uppi - en vildi ekki tjá sig þegar spurt var hvort hann hafnaði því að áðurnefnt tilboð hefði borist honum frá yfirstjórn flokksins. Það mun hafa verið í norð-austur kjördæmi, helsta vígi Framsóknarflokksins, og var Simma boðið annað sætið á eftir Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra. Þriðja sætið, sem menn ætla baráttusæti í kjördæminu, ætlaði þá Birkir J. Jónsson formaður fjárlaganefndar að taka. En þar sem Simmi, sem ættaður er frá Egilsstöðum og vel liðinn í sinni sveit, hafnaði boðinu þrátt fyrir mikinn þrýsting, stefnir í að Birkir setjist nú í annað sæti á lista.
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira