Óskarsbölvun hjónabandsins 3. nóvember 2006 17:00 Reese Witherspoon komst í tölvupóstinn hjá manni sínum og uppgötvaði sér til mikillar skelfingar að hann væri ástfanginn af annarri konu.
Ekki er tekið út með sældinni að halda fjölskyldulífinu gangandi í kvikmyndaborginni Hollywood. Enn erfiðara virðist vera fyrir leikkonur að halda hjónabandinu réttum megin við línuna eftir að þeim hefur hlotnast æðstu verðlaun kvikmyndaakademíunnar, Óskarinn. Svo virðist sem einhver bölvun hafi verið lögð á hjónaband þeirra leikkvenna sem hljóta styttuna góðu því á undanförnum tíu árum hafa sex leikkonur ákveðið að skilja að skiptum við eiginmenn sína. Einhverjum kann það að koma þannig fyrir sjónir að leikararnir sem þær eru giftar þoli illa þá athygli sem spúsur þeirra fá og ákveði því að skipta um kvonfang til að ná athyglinni aftur. Mörgum brá í brún þegar tilkynnt var að Reese Witherspoon og Ryan Philippe ætluðu að skilja eftir að leikkonan komst á snoðir um framhjáhald mannsins síns á tökustað í Ástralíu. Aldrei þessu vant gæti skilnaðurinn orðið henni dýrkeyptur því hjónakornin fyrrverandi skrifuðu ekki undir neinn kaupmála en Witherspoon er hæstlaunaða leikkona Hollywood og komast laun Philippe ekki í hálfkvisti við þær upphæðir sem Óskarsverðlaunaleikkonan fær fyrir hverja mynd. Helen Hunt reið fyrst á vaðið en hún fékk Óskar frænda fyrir hlutverk sitt í As Good as it Gets árið 1998. Hunt giftist manni sínum Hank Azaria ári seinna en hjónabandið entist ekki árið, þau skildu árið 2000, aðeins tveimur árum eftir að styttan góða fékk sinn stað á hillu fyrir ofan arineldinn. Bölvunin var hins vegar lögð á verðlaunin árið 1999 þegar Gwyneth Paltrow grét úr sér augun eftir að hafa verið útnefnd sem besta leikkonan í aðalhlutverki í kvikmyndinni Shakespeare in Love. Viti menn, hún þakkaði að sjálfsðgðu unnusta sínum Ben Affleck fyrir stuðninginn en þau kynntust við gerð myndarinnar. Skömmu síðar hættu þau saman enda var þá ferill Affleck á hraðri niðurleið og hann þurfti að koma sér í umræðuna á ný með nýrrri konu. Tveimur árum síðar mætti Julia Roberts með Benjamin Bratt í Kodak-höllina, hirti gripinn fyrir Erin Brockovich og hálfu ári síðar var ævintýrið úti. Ekki tók betra við að ári þegar Halle Berry var kysst blautum kossi af Adrian Brody en hún fékk þá Óskarinn fyrir Monster"s Ball. Berry hafði lengi stutt við bakið á manni sínum Eric Bennet sem var yfirlýstur kynlífsfíkill en honum virtist ganga illa að venja sig af fíkninni og þau skildu þremur árum síðar, bölvunin virtist hins vegar vera í rénun. Hún blossaði þó aftur upp í fyrra þegar leikkonan Hilary Swank hlaut Óskarinn fyrir leik sinn í kvikmyndinni Million Dollar Baby eftir Clint Eastwood. Eitthvað hafði greinilega gengið á hjá henni og eiginmanninum Chad Lowe því þau tilkynntu nýlega að hjónabandinu væri lokið. Reese Witherspoon hefur því núna sannað tilveru Óskarsbölvunarinnar, að engin leikkona skyldi ganga gift upp sviðið í Kodak-höllinni þegar tilkynnt verður um hver sé sú besta í bransanum.
Menning Mest lesið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Tónlist 50+: Ertu að verða (eða orðin/n) eins og pabbi þinn eða mamma? Áskorun Fleiri fréttir Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Sjá meira