Sjö ára hjónabandi Reese og Ryan lokið 1. nóvember 2006 16:30 skilin Reese Witherspoon og Ryan Phillippe hafa ákveðið að skilja eftir sjö ára hjónaband. MYND/AP
Óskarsverðlaunaleikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar til sjö ára, leikarinn Ryan Phillippe, hafa ákveðið að skilja. Þau giftu sig árið 1999 eftir að hafa leikið saman í myndinni Cruel Intentions. Eiga þau tvö börn saman. „Þau munu áfram vera náin sinni fjölskyldu,“ sagði í yfirlýsingu upplýsingafulltrúa þeirra. „Okkur þykir leitt að tilkynna að Reese og Ryan hafi ákveðið að skilja. Biðjum við ykkur að virða einkalíf þeirra og öryggi barna þeirra.“Í fótspor Aniston og Presleyjennifer aniston Reese Witherspoon hefur ráðið sama skilnaðarlögfræðing og Jennifer Aniston hafði þegar hún skildi við Brad Pitt.Heimildir herma að Witherspoon hafi rætt við hinn þekkta lögfræðing Robert Kaufman sem hefur m.a. tekið upp á sína arma stjörnur á borð við Jennifer Aniston, Rosanne Barr og Lisu Marie Presley. Talið er að enginn einn atburður hafi leitt til skilnaðarins heldur röð smærri atvika. Phillippe úti á lífinuWitherspoon, sem er þrítug, fékk Óskarinn fyrr á árinu fyrir hlutverk sitt sem June Carter Cash í kvikmyndinni Walk The Line. Phillippe, sem er 32 ára, lék á svipuðum tíma ungan lögregluþjón í myndinni Crash, sem fékk Óskarinn sem besta myndin. Nýjasta mynd Phillippes, Flags of Our Fathers, er nú sýnd í Bandaríkjunum en hún var að hluta til tekin upp hér á landi í fyrrasumar. Þá birtust fregnir af Phillippe og félögum hans úr tökuliðinu úti á lífinu í miðbæ Reykjavíkur. Átti íslenska kvenþjóðin erfitt með að halda sig frá Phillippe og vakti meðal annars athygli þegar hann sást á tali við sjálfa ungfrú heim, Unni Birnu Vilhjálmsdóttur. Annar Hollywood-skilnaðurinnÞau Witherspoon og Phillippe mættu saman á frumsýningu Flags of Our Fathers hinn 16. október síðastliðinn og virtist þá allt leika í lyndi. En skjótt skipast veður í lofti og eru þau svo sem ekki eina Hollywood-parið sem hefur ákveðið að skilja á þessu ári. Í janúar skildi tvöfaldi Óskarsverðlaunahafinn Hilary Swank við eiginmann sinn Chad Low. Skilnaður eftir ÓskarRaunin er sú að á undanförnum tíu árum hafa sex af þeim níu leikkonum sem hafa fengið Óskarsverðlaun skilið við maka sína, sem þær höfðu áður þakkað svo innilega fyrir stuðninginn er þær tóku á móti verðlaununum. -fb
Menning Mest lesið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Baráttan um jólagestina hafin Lífið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ Tónlist Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Lífið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið Fleiri fréttir Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Sjá meira