Fordrekaður Íslendingur fær misskiptingu í æð 9. október 2006 10:00 Silja og Sigur Rós. Hópurinn dvaldist í rúma viku í Svasílandi.
Hljómsveitin Sigur Rós hélt fyrir tveimur vikum síðan til Svasílands þar sem þeir félagar kynntu sér hjálparstarf UNICEF og lögðu sitt af mörkum í baráttunni gegn alnæmi. Kvikmyndagerðarkonan Silja Hauksdóttir var með í för og festi þessa ótrúlegu för á mynd en væntanlega verður sjónvarpsþáttur um ferð Sigur Rósar sýndur á Stöð 2 1. desember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn alnæmi. Silja og Sigur Rós voru þarna í heila viku og fylgdist leikstjórinn með strákunum hjálpa UNICEF að gera verk dagsins og hjálpa krökkunum að komast í gegnum daginn. Mikil neyð ríkir í Svasílandi en þar hæsta hlutfall HIV-smitaðra í öllum heiminum. Silja kom heim frá Afríkuríkinu fyrir viku síðan og var eiginlega enn að jafna sig eftir ferðalagið. Ég var búin að undirbúa mig eins mikið og ég gat en það var voðalega erfitt þegar ég í raun vissi ekkert hvað ég var að fara útí,¿ útskýrir Silja sem segir þetta hafa verið magnaða upplifun. "Ég var náttúrlega að mynda og reyndi að halda ákveðinni fjarlægð enda kom ég með til að miðla til Íslands en ekki upplifa, segir leikstjórinn en bætir síðan við að þegar hún hafi skoðað myndefnið hafi hún gert sér grein fyrir hversu mikil neyðin í raun er. Það var mjög erfitt að sjá þessar aðstæður sem fólkið lifir við og skrýtið að vera fordrekaður Íslendingur sem fær síðan misskiptinguna beint í æð," segir Silja. Þetta var hálfgerð opinberun. Silja segir að samtökin séu mjög vön því að taka á móti hópum eins og þessum. Þarna hafi hins vegar ekki verið neitt símasamband og ef hún vildi ræða við einhvern þá kostaði það klukkutíma bíltúr. "Við urðum í raun að kúpla okkur niður úr fimmta gírnum frá Íslandi yfir í fyrsta gír með fjórhjóladrifi ef þannig má að orði komast," sagði Silja sem hugsanlega mun leggja land undir aftur en í undirbúningi er ferð hennar til Síerra Leóne og Gínea-Bissá.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira