Lífið

Sumir spila bridds - við skrifum bækur

Rithöfundadúettinn Páll segir þá miklu forvinnu sem nauðsynleg er þegar tveir skrifa saman gera það að verkum að sagan sé orðin skýrari áður en skrif hefjast.
Rithöfundadúettinn Páll segir þá miklu forvinnu sem nauðsynleg er þegar tveir skrifa saman gera það að verkum að sagan sé orðin skýrari áður en skrif hefjast.

Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson senda frá sér nýja spennusögu, Farþegann, á næstu vikum. Hún er önnur bókin sem þeir skrifa saman, en þeir sendu frá sér Í upphafi var morðið árið 2002 og hafa áður skrifað saman sjónvarpshandrit.

Páll Kristinn Pálsson fór varlega í sakirnar þegar Fréttablaðið grennslaðist fyrir um nýju bókina. Það er alltaf erfitt að tala um glæpasögur, maður vill ekki spilla neinu fyrir lesendum. Aðalpersónan er ungur leigubílsstjóri sem tekur upp farþega á nýársdag. Þeir fara í ansi óvenjulega og langa ferð, svona miðað við venjulegan leigubílstúr. Ferðin hefur síðan miklar og óvæntar afleiðingar sem sagan snýst um, sagði Páll.

Hann kvaðst vera ánægður með samvinnuna og þykja gaman að skrifa við annan mann. Þetta er svona okkar sameiginlega, metnaðarfulla áhugamál. Aðrir fara í golf, spila bridds eða tefla, við skemmtum okkur við það að semja sögur, sagði hann. Það liggur í augum uppi að vinnuferlið hlýtur þó að vera annað og flóknara en þegar um einn höfund er að ræða. Við þurfum báðir að skilja allt sem gerist og persónurnar sama skilningi áður en við förum að skrifa. Í fyrstu umferð skiptum við með okkur köflum, og að því loknu þar sem við förum saman yfir alla bókina, setningu fyrir setningu, útskýrði Páll. Markmiðið er náttúrulega að semja góðan, samfelldan texta og þegar upp er staðið munum við varla hvor skrifaði hvað.

Árna og Páli var hrósað fyrir frumleg efnistök þegar Í upphafi var morðið kom út. Páll segir þá Árna þó hafa efast um ágæti bókarinnar. Hún var fyrst hugsuð sem sjónvarpssería. Vegna þess hve sagan var mikil umfangs gerðum við okkur grein fyrir því að hún yrði sennilega ekki framleidd og breyttum henni í bók. Við vorum mjög efins um það framtak á þeim tíma. Það gekk hins vegar svo vel að við víluðum ekkert fyrir okkur að reyna aftur, sagði Páll. Farþeginn kemur út á næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.