Náttúrufræðistofnun fær styrk 11. janúar 2006 20:40 MYND/E.Ol.
Skrifstofustjóri umhverfisráðuneytisins segir að framvegis fái Náttúrfræðistofnun styrk úr veiðikortasjóði með sama hætti og aðrir. Stofnunin fékk greitt úr sjóðnum í lok síðasta árs þótt umsóknafrestur sé ekki útrunninn - og renni ekki út fyrr en um miðjan febrúar. Fyrst þegar Umhverfisráðuneytið óskaði álits Umhverfisstofnunar á umsókn Náttúrfræðistofnunar Íslands um styrk úr veiðikortasjóði, bað Umhverfisstofnunin um nýja rannsóknaráætlun frá Náttúrufræðistofnun. Umsóknin var þá orðin þriggja ára gömul. Ráðuneytið sagði hins vegar ekki þörf á nýrri áætlun og Náttúrufræðistofnun tók í sama streng. Ráðuneytið minnti á völd sín og sagði að umhverfisráðherra ákvæði hverjir fengju úthlutað úr veiðikortasjóði, þar á meðal Umhverfisstofnun sem rekur veiðikortakerfið. Þetta orðalag vekur spurningar um hvort Umhverfisstofnun hefði þurft að óttast synjun um framlag úr sjóðnum gæfi hún ekki umsögn eins og beðið hafði verið um. Umhverfisstofnun neitaði samt og vísaði í álit umboðsmanns Alþingis frá árinu 2004 um að fyrirgreiðsla af því tagi sem um væri beðið stæðist ekki lög. Þann 30. desember fékk Náttúrfræðistofnun 6,6 milljónir króna samkvæmt beiðni Umhverfisstofnunar, þrátt fyrir allt. Í bréfi til ráðuneytisins 6. janúar tilkynnti Umhverfisstofnun ráðuneytinu um styrkveitinguna og vísaði í fyrirmæli í tölvupósti frá ráðuneytinu. Þó var ítrekað að stofnunin teldi þetta verklag ólögmætt. Tölvupóstsamskiptin, sem vísað er í, fylgdu ekki með gögnum um samskipti ráðuneytisins og Umhverfisstofnunar, sem NFS fékk afhent um þetta mál.
Mest lesið „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Nýjustu tölur í Reykjavík Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Nýjustu tölur í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Nýjustu tölur í Suðurnesjabæ Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Sjá meira