Innlent

Skora á DV að endurskoða ritstjórnarstefnu

Hafin er undirskriftasöfnun á Netinu þar sem skorað er á blaðamenn, ritstjórn og útgefanda DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun um menn og viðkvæm málefni. Áskorunin kemur til vegna fréttar blaðsins í gær um grunaðan kynferðisofbeldismann á Ísafirði, en maðurinn svipti sig lífi eftir að blaðið kom út.

Að undirskriftasöfnuninni standa Deiglan.com, Samband ungra sjálfstæðismanna, Ungir jafnaðarmenn, Stúdentaráð Háskóla Íslands, Múrinn.is, Samband ungra framsóknarmanna, Tíkin.is, Ung frjálslynd, Heimdallur, Ung vinstri - græn,Vaka, Röskva og H-listinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×