Hátíð harmonikunnar um helgina 13. júlí 2006 16:30 Harmonikutónar úr hverju skúmaskoti Félagar úr Harmonikufélaginu Hljómi halda uppi fjörinu á Árbæjarsafni. mynd/ingi karlsson
Það verður hátíðarstemning í Árbæjarsafni um helgina. Í tilefni af Harmonikuhátíð í Reykjavík verður efnt til tónleika og samspils á sunnudaginn. Dagskráin í Árbæjarsafni er miðpunktur hátíðarinnar, útskýrir Jónatan Karlsson skipuleggjandi hennar. Venju samkvæmt verða margir hljóðfæraleikarar á hátíðinni bæði einstaklingar og hópar sem flestir koma úr Harmonikufélaginu Hljómi. Þetta er í áttunda skipti sem hátíðin er haldin og undanfarin sumur hefur þessi háttur verið hafður á og fallið vel í kramið hjá gestum á safninu þegar harmonikuleikaranir dúkka upp og leika um allt safnasvæðið. Þetta hefur verið með albestu dögum í safninu síðustu sumur. Jónatan útskýrir að allskonar músík verði leikin og að gestir hátíðarinnar, harmonikusnillingurinn Ottar Johansen og Ivar Th. Dagenborg, útgefandi norska harmonikublaðsins Nygammalt, muni líka láta í sér heyra. Svo gæti jafnvel farið að hlustendur tækju sporið ef veðrið verður gott. Það hefur komið fyrir, segir hann sposkur. Jónatan tekur undir að áhuginn á hljóðfærinu fari sífellt vaxandi. Sérstaklega hjá krökkum og ungu fólki sem hefur verið að bætast við. Fyrir nokkrum árum voru þetta eiginlega bara gamlir karlar nú er töluvert af ungum dömum sem spila með okkur af fullum krafti. Á sunnudagskvöldið munu norsku gestirnir síðan halda tónleika í Norræna húsinu og leika af hjartans list en þess má geta að Ottar er líklega þekktasti nemandi hins víðfræga Toralfs Tollefsen, sem margir íslenskir harmonikuunnendur þekkja. Skipuleggjandinn á ekki langt að sækja harmonikuáhugann því hann er sonur eins af ástsælustu harmonikuleikurum Íslands, Karls Jónatanssonar. Ég veiti Harmonikumiðstöðinni forstöðu og hef séð um þessa hátíð í nokkur ár. Ég hef erft þetta pínulítið þó ég spili ekki sjálfur, segir Jónatan sem kveðst þó spila á trommur því einhver þurfi jú að annast undirleikinn.
Menning Mest lesið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Fleiri fréttir Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Sjá meira