Alheimssamtök lyðheilsustöðva stofnuð 16. febrúar 2006 10:00
Alheimssamtök opinberra lýðheilsustöðva, International Association of National Public Health Institutes (IANPHI) hafa verið stofnuð og fór stofnfundurinn fram í Ríó de Janeiro í Brasilíu, dagana 29. janúar til 1. febrúar sl. með þátttöku forstjóra flestra opinberra lýðheilsustöðva sem nú eru starfandi í löndum víðs vegar um heiminn. Þeirra á meðal var Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar Íslands. Af því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Lýðheilsustofnun ætla samtökin fyrst og fremst að leggja áherslu á bæta heilsu þjóða og draga úr sjúkdómum með því að efla lýðheilsustarf með bættri þjónustu, rannsóknum og starfsþjálfun. Markmið alheimssamtakanna er að styrkja starfsemi lýðheilsustöðva. Samtökin aðstoða einnig lönd við stofnun opinberra lýðheilsustöðva eða styrkja eftir þörfum þær sem þegar eru starfandi. Þannig vonast samtökin til að þeirra framlag verði til þess að efla lýðheilsustarf í heiminum og leita í því sambandi eftir samstarfi við aðra lykilaðila, s.s. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina, Alþjóðabankann og aðrar stofnanir. Á stofnfundinum, sem brasilíska lýðheilsustöðin Fiocruz hélt, voru samþykkt lög alheimssamtakanna og kosið í stjórn þeirra. Jafnframt var gengið frá ráðningu aðalritara samtakanna og gerð drög að starfsáætlun næsta árs. Formaður stjórnar er dr. Jeffrey Koplan, fyrrum forstjóri CDC í Bandaríkjunum, varaformaður er dr. Pekka Puska, forstjóri finnsku lýðheilsustöðvarinnar, KTL, en hann bauð að finnska lýðheilsustöðin myndi hýsa skrifstofu samtakanna. Auk þeirra skipa stjórnina forstjóri lýðheilsustöðvar Brasilíu, Kína, Tékklands, Marokkó, Nígeríu og Tælands. Dr. Pekka Jousilahti verður aðalritari samtakanna og stýrir aðalskrifstofunni í Finnlandi. Á fundinum í Brasilíu var sérstaklega rætt um möguleg hlutverk lýðheilsustöðva í tengslum við þrjú stór verkefni: að fuglaflensan verði að alheimsfaraldri, viðbúnað vegna náttúruhamfara og forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum. Farið var yfir og rætt um það starf sem unnið er á vegum Fiocruz, lýðheilsustöðvar Brasilíu. Til að alheimssamtökin geti starfað af krafti hafa þau hlotið fjárstuðning frá Stofnun Bill og Melindu Gates. Forstjóri alþjóðaheilbrigðismáladeildar Gates sjóðsins, dr. David Fleming, lagði áherslu á að með þessari samvinnu hefðu alheimssamtökin möguleika á að hafa áhrif á alþjóðastefnu í heilbrigðismálum til styrkrar lýðheilsustarfi, ekki síst í löndum þar sem fátækt ríkti. Í mörgum löndum er það afar erfitt viðfangsefni að stofnsetja og reka lýðheilsustofnun.
Fréttir Innlent Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira