Óvíst er með frestun á framkvæmdum 19. júní 2006 07:30 Vilhjálmur "
Ekki liggur fyrir hvort og þá hvaða framkvæmdum yrði frestað hjá Reykjavíkurborg," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. Í ávarpi Geirs H. Haarde þann 17. júní vék forsætisráðherra að nauðsyn þess að tryggja stöðugleika í efnahagslífi á næstu árum. Geir sagði að ríkisstjórnin myndi gera sitt í því efni, þó það gæti kostað tímabundna frestun á opinberum framkvæmdum meðal annars. Einnig kallaði hann eftir ábyrgð aðila vinnumarkaðarins, bankanna og sveitarfélaganna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tekur undir orð forsætisráðherra um nauðsyn stöðugleika í efnahagslífinu. Aðspurður um hvort til standi að draga úr einhverjum fyrirhuguðum framkvæmdum hjá borginni segist hann eiga eftir að fara yfir það nánar. "Ég hef ekki haft tíma til að fara yfir það nákvæmlega hvaða framkvæmdir það gætu orðið ef af því verður hjá okkur." Vilhjálmur segir undirritaðan samning liggja fyrir um byggingu tónlistarhallar og ráðstefnuhúss sem sé stærsta framkvæmdin. "Undirbúningur er þegar hafinn og því ekki hægt að bakka með það miðað við það samkomulag sem fráfarandi meirihluti undirritaði." Hlutur borgarinnar er 46 prósent á móti ríkinu af 600 milljónum sem fara árlega í þá framkvæmd. Vilhjálmur segir Sundabrautina verkefni sem taki mörg ár. "Þegar ákvörðun um hvar hún á að liggja hefur verið tekin, sem verður vonandi í haust, tekur hönnunarvinnan eitt og hálft ár og henni verður ekki frestað." Vilhjálmur segir að farið verði betur yfir þessi mál hjá borginni. "En það eiga allir að vinna að því að auka stöðugleikann í samfélaginu og það er skylda okkar sveitarstjórnarmanna ekkert síður en ríkisins." Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segist sammála forsætisráðherra en spurður um það hvort framkvæmdum við óperuhúsið í Kópavogi verði frestað segir hann að það verði skoðað og ákvörðun tekin um það síðar. "Við höfum þurft að framkvæma mikið í Kópavogi þar sem íbúum hefur fjölgað mjög mikið en við munum hugsa okkar gang til að viðhalda stöðugleikanum. En það er ýmislegt sem ríkið getur gert í þessum tilgangi, til dæmis skil ég ekki af hverju Siglufjarðargöngum er ekki frestað. Einnig geta menn frestað tónlistarhúsinu í Reykjavík og hátæknisjúkrahúsinu, þetta eru mun viðameiri framkvæmdir en óperuhús í Kópavogi sem kosta myndi um tvo milljarða."
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira