Innlent

Foreldrar fái eingreiðslu

Markmið meirihlutasamstarfs Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Sveitarfélaginu Árborg er að byggja upp fjölskylduvænt sveitarfélag. Fram kemur í nýkynntum málefnasamningi þeirra að foreldrum þeim sem kjósa að vera heima með börn sín frá níu til átján mánaða aldurs bjóðist valgreiðsla að upphæð 20.000 krónur á mánuði.

Ennfremur er stefnt að því að öllum börnum frá átján mánaða aldri verði tryggð leikskólavist á kjörtímabilinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×