Sátu fyrir framan loftpúða 16. júní 2006 06:45 Einar Magnús Magnússon Segir að svona kannanir skili gríðarlegum árangri.
Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa birt niðurstöður úr árlegri könnun sinni á öryggi barna í bílum. Niðurstöðurnar sýna að nítján börn sátu fyrir framan öryggispúða, sem þýðir að þau hafi verið í alvarlegri lífshættu á meðan akstri stóð. Ef börn hafa ekki náð 150 sentimetra hæð mega þau ekki undir neinum kringumstæðum sitja fyrir framan virkan öryggispúða þar sem hann skýst fram á um 300 kílómetra hraða við högg og það getur reynst börnum banvænt. Niðurstöðurnar sýna einnig að mikið hefur áunnist undanfarin ár. Árið 1997 voru 32 prósent barna án nokkurs öryggisbúnaðar í bílum en í ár er talan rúm þrjú prósent. Þennan árangur skýrir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, með þeim könnunum sem hafa verið gerðar. "Við höfum reynt að láta fólk virkilega finna fyrir niðurstöðum þessara kannana," segir Einar og bendir á að foreldrum sé leiðbeint um hvernig best sé að haga öryggisatriðum þegar könnunin fer fram. Hann bendir einnig á að ýmiss konar áróður sem farið hefur fram og hertar reglur sem hafa verið settar hafi borið árangur. Könnunin var gerð í apríl og tók til öryggisbúnaðar barna og notkunar hans í bílum foreldra og forráðamanna. Könnunin var gerð við 68 leikskóla um land allt og þátttakendur voru yfir 2.000 í ár.
Innlent Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Innlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Svona var Pallborðið með Heiðu Björgu og Pétri Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Sjá meira