Innlent

Fóðrar hunda sína á hauslausum hestum

Hundabúrið Hér sjást hræin liggja hálfétin á víð og dreif um búr hundanna. Eigandi hundanna segir ekkert óeðlilegt við það að fóðra hundana á þessum hræjum. Fyrrverandi yfirdýralæknir segir ekki beint hægt að kalla þetta illa meðferð á dýrum en hún sé óeðlileg.
Hundabúrið Hér sjást hræin liggja hálfétin á víð og dreif um búr hundanna. Eigandi hundanna segir ekkert óeðlilegt við það að fóðra hundana á þessum hræjum. Fyrrverandi yfirdýralæknir segir ekki beint hægt að kalla þetta illa meðferð á dýrum en hún sé óeðlileg.

Dýraverndunarsamtökum Íslands barst á dögunum ábending um það að hundar í Flekkudal við Meðalfellsvatn væru fóðraðir á afhöfðuðum hesthræjum sem væru látin liggja undir berum himni dögum saman. Samtökin komu málinu áfram til Umhverfisstofnunar, sem skoðar nú málið.

Þetta er mjög óvenjulegt," segir Halldór Runólfsson, fyrrverandi yfirdýralæknir. "Það er ekki beint hægt að kalla þetta illa meðferð að því leyti að hundarnir hafa greinilega nóg að éta en okkur finnst það mjög óeðlileg meðferð að fóðra hundana með þessum hætti."

Halldór segir þetta ekki brot á neinum reglugerðum. "Þetta er svo óvanalegt að það hefur engum manni dottið í hug að setja nokkur reglugerðarákvæði gegn þessu. Okkur finnst þetta hins vegar ekki ganga upp og það stendur til að héraðsdýralæknir Reykjavíkur ræði við eigendurna og fái þá til að hætta þessu."

Halldór segir ólíklegt að hætta skapist af því að láta hrátt kjötið liggja úti. "Auðvitað er það ókræsilegt en það er tæpast hægt að segja að það sé hundunum hættulegt. Hundar eru ýmsu vanir og þola ýmislegt. Það er frekar að það skapist af þessu vond lykt og að flugur gætu sótt í þetta. Það eðlilega væri að skera kjötið af beinunum og gefa hundunum það."

Jóhannes Björnsson, ábúandi á jörðinni og eigandi hundanna, segir málið á misskilningi byggt.

"Það sem er gert er að hrossum er slátrað og þau úrbeinuð og síðan eru hryggur og læri sett inn til hundanna og þeir látnir naga af beinunum í fjóra fimm daga. Það eru margir á Íslandi sem fóðra hunda á hrossakjöti og þetta var gert hér í samráði við dýralækni á sínum tíma. Það er búið að gera þetta í mörg ár og hundunum farnast vel."

óhannes segist urða hræin eftir að hundarnir gæða sér á þeim en Halldór Runólfsson segir slíka urðun mjög óæskilega. Jóhannes segist eingöngu reyna að hugsa vel um hundana sína og þetta sé liður í því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×