Innlent

Stóriðjustefnan heldur áfram

Jón sigurðsson
Nýr ráðherra hvikar ekki frá stóriðjustefnunni.
Fréttablaðið/Hörður
Jón sigurðsson Nýr ráðherra hvikar ekki frá stóriðjustefnunni. Fréttablaðið/Hörður

Nýr iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, Jón Sigurðsson, segir komu sína í ráðuneytið ekki marka stefnubreytingu í málefnum stóriðju. "Það er unnið af mikilli varúð. Það má ekki dæma stóriðjustefnuna eftir mestu og stærstu framkvæmdum Íslandssögunnar, sem standa nú yfir. Við þurfum að horfa á þetta yfir lengri tíma."

Aðspurður um verðbólgu og aukna þenslu sagði Jón að tímasetja þyrfti framkvæmdirnar rétt. "Það þarf að vinna í því af alefli að efla stöðugleika og lækka hitann í hagkerfinu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×