Hefur efasemdir um getu Seðlabankans 14. júní 2006 07:30 Gylfi Zoëga
Vextir munu hækka á heimsmarkaði á næstu mánuðum og búast má við aukinni verðbólgu. Verð hlutabréfa mun líklega lækka, jafnt hér sem erlendis. Slík þróun mun auka þrýsting á krónuna og gera hagstjórn hér erfiðari. Þetta er mat Gylfa Zoëga, prófessors í þjóðhagfræði við Háskóla Íslands. Gylfi telur að ríkisstjórnin hafi ekki sinnt hagstjórninni nægilega vel undanfarin ár þó að hagkerfið hafi verið markaðsvætt og markaðurinn eflst á kostnað stjórnmálanna. Árangurinn hafi ekki látið á sér standa. En markaðsvæddu hagkerfi fylgi alltaf hagsveiflur og sumar þeirra séu dýpri en aðrar. Svo virðist sem stjórnmálamennirnir hafi gleymt að breyta sjálfum sér, segir Gylfi og telur að stjórnvöld verði að huga að hagstjórn þar sem meiri virðing er borin fyrir lögmálum markaðshagkerfis ef vel eigi að takast. Þegar búið er að hleypa markaðsöflunum lausum þá verður að sýna þeim tilhlýðilega virðingu. Það sem virðist hafa gleymst undanfarin misseri er sú staðreynd að framleiðslugeta þjóðar er takmörkuð og þegar eftirspurn verður meiri en framleiðslugetan þá fer verðbólga af stað. Seðlabankinn hefur staðið einn í baráttunni við verðbólguna, segir hann. Gylfi telur að Seðlabankinn hafi með vaxtaákvörðunum sínum beint innlendri eftirspurn til útlanda. Það komi fram í gríðarlegum viðskiptahalla. En hallinn hefur verið svo mikill, gengið svo hátt að efasemdir hafa vaknað um getu hans til þess að standa sig í þessu hlutverki, segir Gylfi og telur erfitt að tala verðbólgu niður ef ekki er samfara gripið til ráðstafana til þess að minnka eftirspurn. Slíkt viðbrögð hefðu í vetur falið í sér að Seðlabankinn hefði hækkað vexti fyrr og meira til þess að verja gengið, viðskiptabankar hefðu verið beittir þrýstingi til þess að draga úr útlánum og ríkisstjórnin hefði hækkað tekjuskatta tímabundið til þess að slá á einkaneyslu. En nú er hætta á að Seðlabankinn hafi misst trúverðugleika og hafi lítil áhrif á ákvörðun gengis, segir hann. Einungis með því að samhæfa fjármálastjórn ríkisins, peningamálastjórn Seðlabankans og samráð við aðila vinnumarkaðarins er unnt að koma í veg fyrir gengishrap og verðbólga stefni fjárhag skuldsettra heimila og fyrirtækja í voða og þar með stöðugleika fjármálakerfisins.
Innlent Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Sjá meira