Hálftímasigling til Vestmannaeyja 29. júní 2006 07:15 Elliði Vignisson
Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu samgönguráðherra þess efnis að ferjusiglingar frá höfn í Bakkafjöru hæfust árið 2010. Rannsóknum á hafnarsvæðinu er ekki lokið ennþá. Tillagan, sem byggð er á rannsóknarvinnu starfshóps um samgöngubætur milli lands og Eyja, gerir ráð fyrir að ferjulægi í Bakkafjöru verði framtíðartenging milli lands og Eyja, en heildarkostnaður við uppbyggingu hafnarinnar og byggingar nýrrar ferju er talinn nema 3,8 til 4,5 milljörðum króna. Eftir þessa breytingu styttist ferðatíminn til og frá Vestmannaeyjum niður í hálftíma en siglingin með Herjólfi tekur í tvær klukkustundir og 45 mínútur, miðað við eðlilegar aðstæður. Gert er ráð fyrir að siglingar með nýrri ferju hefjist árið 2010. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestamanneyjum, segir þessar breytingar skipta sköpum fyrir Vestmannaeyjar og Suðurland í heild sinni. Ég er ánægður með þessa viðurkenningu ríkisstjórnarinnar og samgönguráðherra, á þeim vaxtarmöguleika sem skiptir sköpum fyrir Vestmannaeyjar, sagði Elliði. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra segir áætlaðan smíðatíma nýrrar ferju vera 15 til 18 mánuði. Ljóst er nú að ekki verður ráðist í gerð jarðgangna en rannsóknir á þeim möguleika gáfu ekki tilefni til þess að þær væru raunhæfur kostur í stöðunni. Að teknu tilliti til þeirrar niðurstöðu starfshópsins að ekki sé réttlætanlegt að leggja til að farið verði í frekari rannsóknir varðandi gerð jarðgangna milli lands og Vestmannaeyja og þess hversu fýsilegur kostur ferjulægi í Bakkafjöru er miðað við þær rannsóknir sem unnar hafa verið, var ekkert því til fyrirstöðu að taka ákvörðun í málinu, sagði Sturla eftir að ákvörðun ríkisstjórnarinnar lá fyrir. Samkvæmt áætlunum er reiknað með því að framkvæmdir hefjist á næsta ári en fram að þeim tíma sem tekur að koma siglingunum frá Bakkafjöru í gagnið verður leitast við að hámarka nýtingu á núverandi samgönguleiðum.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira