Vöruskiptahalli ekki meiri í einum mánuði í 17 ár 28. apríl 2006 12:13 MYND/GVA
Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var 13,4 milljarðar króna og hefur ekki verið meiri í einum mánuði síðastliðin sautján ár. Jöfnuðurinn er 16,7 milljörðum króna lakari á fyrsta ársfjórðungi þess árs en á sama tíma í fyrra. Bílainnflutningur jókst um nærri tvo þriðju á tímabilinu en búast má við að hann dragist saman á næstunni vegna lækkunar á gengi krónunnar. Hagstofa Íslands sendi í morgun frá sér nýjar tölur um vöruskipti við útlönd. Þar kemur fram að fyrstu þrjá mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 48,8 milljarða króna en inn fyrir um 80 milljarða og nemur vöruskiptahallinn það sem af er ári því um 32 milljörðum. Hann var hins vegar helmingi minni á sama tíma í fyrra miðað við sama gengi, eða um 16 milljarðar. Ef aðeins er litið til marsmánaðar kemur í ljós að vöruskiptahallinn við útlönd var 13,4 milljarðar sem er það mesta sem mælst hefur í einum mánuði frá því að samanburðarmælingar Hagstofunnar hófust árið 1989. Fyrra met í viðskiptahalla var ágúst í fyrra, þegar vöruskipti voru neikvæð um 12,9 milljarða. Verðmæti vöruútflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var 2,5 milljörðum meiri en á sama tíma árið 2005. Sjávarafurðir og iðnaðarvörur voru um 86 prósent alls útflutnings á fyrsta ársfjórðungi, og jókst verðmæti útfluttra iðnaðarvara um 12 prósent milli ára, aðallega vegna aukins álútflutnings. Verðmæti vöruinnflutnings jókst hins vegar um tæpan þriðjung milli ára. Mest aukning í innflutningi fyrstu þrjá mánuði ársins var í fjárfestingarvöru, eins og til dæmis byggingavörum, og hrávörum og rekstrarvörum. Íslendingar keyptu hins vegar flutningatæki fyrir um 9 prósentum meira fé á fyrstu þremur mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Það segir þó ekki alla söguna því fluttir voru inn fólksbílar fyrir nærri 60 prósentum hærri upphæð í janúar til mars í ár en á sama tíma í fyrra. Hins vegar má búast við því að lækkun á gengi krónunnar hafi áhrif á söluna á næstunni því með lækkuninni hækkar innkaupsverð á bílum og hafa sum bílaumboð þegar hækkað verð á nýjum bílum og önnur huga að því. Það má því búast við að sala á bílum dragist saman á næstu mánuði.
Fréttir Innlent Mest lesið Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Bolsonaro í stofufangelsi Erlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Innlent Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Fleiri fréttir Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður Sjá meira