Samkeppniseftirlitið gerði einnig húsleit hjá Kreditkortum 14. júní 2006 12:33 MYND/Vilhelm
Eftir að Samkeppniseftirlitið gerði húsleit hjá VISA Ísland í gær fóru fulltrúar stofnunarinnar í höfuðstöðvar Kreditkorta hf. og gerðu upptæk gögn. Húsleit var gerð hjá VISA í gær vegna rökstudds gruns Samkeppniseftirlitsins um að fyrirtækið væri að brjóta samkeppnislög. Starfsmenn Samkeppniseftilitsins voru mest allan gærdaginn hjá VISA og fóru í gegnum tölvur og ýmis gögn. Eftir að starfsmenn Samkeppniseftirlitsins höfðu lokið störfum á skrifstoum VISA fóru þeir til Kreditkorta hf. sem er með með Mastercard og Maestrokort. Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri Kreditkorta, segir starfsmennina hafa komið klukkan fimm. Hann telur ástæðu húsleitarinnar líklega þá að fulltrúar Samkeppniseftirlitsins hafi rekið augun í eitthvað í húsleitinni hjá VISA sem gaf þeim tilefni til að fara inn hjá Kreditkortum. Ragnar segist ekki vita hvaða gögn þeir skoðuðu. Hann segir Kreditkort eiga í samstarfi við VISA í mörgum málum sem þeir telji ekki samkeppnismál, svo sem samnýtingu á posakerfum. Halldór Guðbjarnason, framkvæmdastjóri VISA, sagði í gær að hann væri þess fullviss að danska greiðslumiðlunin PBS hafi staðið á bak við húsleitina. PBS er í eigu danska seðlabankans, danskra banka og sparisjóða og á í samkeppni við VISA og Kreditkort á Íslandi. Umboðsaðilli PBS á Íslandi er kortaþjónustan. Gunnar Bæringsson, einn af forsvarsmönnum þess fyrirtækis, segir ekkert hæft í þessum ásökunum og að fyrirtækið hafi ekki lagt inn kærur á hendur VISA. Samkvæmt heimildum NFS hafa kvartanir borist frá verslunareigendum um að VISA hafi verið að reyna að koma í veg fyrir viðskipti þeirra við PBS. Ekki er þó vitað á þessari stundu hvort að húsleit Samkeppisyfirvalda tengjist þessum kvörtunum. Einnig hefur verið bent á að nú séu í gangi kannanir samkeppnisyfirvalda víða um heim á kortastarfsemi og hafa samkeppnisyfirvöld verið hvött til að taka þátt í þeim. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur hins vegar lýst því yfir að rökstuddur grunur sé um að VISA hafi brotið samkeppnislög og því líklega annað að baki en almennt átak. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppiseftirlitsins, segir ekkert hægt að segja til um hvenær niðurstöðu verði að vænta.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Vance þreifar fyrir sér í Sviss Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Fleiri fréttir Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Sjá meira