Geir víðförlasti ráðherrann 14. júní 2006 06:45
Þrír nýir ráðherrar munu taka sæti í ríkisstjórn á morgun. Jón Sigurðsson fer í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Jónína Bjartmarz í umhverfisráðuneytið og Magnús Stefánsson í félagsmálaráðuneytið. Þá mun Geir H. Haarde færa sig úr utanríkisráðuneytinu yfir í forsætisráðuneytið og Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tekur hans sæti í utanríkisráðuneytinu. Eftir ráðherraskiptin munu 25 manns, sex konur og nítján karlar, hafa gegnt starfi ráðherra frá því að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hófu ríkisstjórnarsamstarf árið 1995. Af þeim eru þrettán framsóknarmenn og tólf sjálfstæðismenn. Þeir munu samanlagt hafa setið á 39 ráðherrastólum og þá mun hafa verið skipt 29 sinnum um ráðherra á tímabilinu. Flestir munu hafa gegnt starfi umhverfisráðherra, fimm manns, þar af Halldór Ásgrímsson í 18 daga. Fjórir munu hafa verið utanríkisráðherrar, félagsmálaráðherrar, dóms- og kirkjumálaráðherrar og sjávarútvegsráðherrar, en tveimur síðastnefndu embættunum gegndi Davíð Oddsson í 18 daga. Minnstar umhleypingar hafa verið í samgönguráðuneytinu en Sturla Böðvarsson tók við ráðherraembættinu árið 1999 og hefur gegnt starfinu síðan. Af þeim 29 breytingum á ráðherraskipan sem gerðar hafa verið frá árinu 1995 var einungis ein gerð á fyrsta kjörtímabilinu, þegar Friðrik Sophusson vék úr stöðu fjármálaráðherra. Hins vegar hafa verið gerðar fjórtán breytingar á ráðherraskipan eftir skipun í embættin að loknum kosningum árið 2003. Víðförlasti ráðherrann á tímabilinu, ef frá eru taldir átján dagar Davíðs og Halldórs í maí 1999, er Geir H. Haarde sem gegnt hefur starfi fjármála-, utanríkis- og nú næst forsætisráðherra.
Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Fleiri fréttir „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira