FH-ingar eru í algerum sérflokki 15. júní 2005 00:01
FH-ingar tróna á toppi Landsbankadeildarinnar með fullt hús stiga eftir sanngjarnan sigur á Val í gær, 1–0. Sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri. Allan Borgvardt skoraði eina mark leiksins strax á 13. mínútu leiksins. Fullt hús eftir sex leiki og eru ekki enn farnir að spila af fullum styrkleika. FH er einfaldlega langbesta fótboltalið Íslands í dag og það sönnuðu þeir á Hlíðarenda í gær. Með álíka áframhaldi munu þeir sjá til þess að mótið klárist fyrr en áður hefur þekkst. Þeir hafa klárlega getuna til þess og þótt þeir hafi aðeins gefið eftir í síðari hálfleik í gær náði Valur aldrei að opna vörnina og það segir meira en mörg orð um styrkleika besta liðs Íslands. Það var aðeins eitt lið sem mætti tilbúið í leikinn og það var FH. Íslandsmeistararnir tóku leikinn traustataki strax frá fyrstu mínútu og heimamenn að Hlíðarenda voru sem börn í höndunum á þeim í fyrri hálfleik.Strax á fyrstu mínútu fengu FH-ingar tvö dauðafæri í sömu sókninni en á einhvern ótrúlegan hátt vildi boltinn ekki inn fyrir línuna. Sóttu nær linnulaust FH var grimmara í öll návígi, sótti nær linnulaust og var í fimmta gír á meðan Valsmenn virtust fastir í þeim fyrsta. Eitthvað varð undan að láta og á 12. mínútu skoraði Allan Borgvardt verðskuldað mark eftir varnarmistök taugaveiklaðra varnarmanna Vals. Valsmenn voru nær meðvitundarlausir fyrir framan 3000 áhorfendur og virtust ekki vita hvernig þeir áttu að haga sér. Það er sama hvar var drepið niður fæti í leik liðsins í fyrri hálfleik, það var allt í ólagi. Vörnin vann illa saman, var taugaveikluð og skilaði boltanum illa frá sér. Bakveðirnir áttu fullt í fangi með vaska kantmenn FH og gátu því ekki fært sig mjög framarlega. Á miðjusvæðinu réðu Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, og félagar ríkjum. Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals, og félagar hans vissu vart sitt rjúkandi ráð og sýndu litla mótstöðu þegar þeir voru yfirspilaðir hvað eftir annað. Húsvíkingarnir á vængjum Valsmanna, Baldur og Sigþór, voru eins og hræddir 3. flokks strákar og ógnuðu bakvörðum FH ekki svo mikið sem einu sinni í hálfleiknum. Það segir sig þar með sjálft að sóknarleikur Vals var enginn. FH-ingar voru með flugeldasýningu í fyrri hálfleik og þeir fengu fleiri færi áður en Egill Már blés til leikhlés en blessunarlega fyrir Val náðu þeir ekki að nýta færin en ekki hefði verið ósanngjarnt að FH leiddi með þrem til fjórum mörkum í leikhléi. FH-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn eins og þeir luku þeim fyrri og héldu áfram að þjarma að Valsmönnum. Willum, þjálfari Vals, gerði lífsnauðsynlegar breytingar á liði sínu á 56. mínútu. Tók tvo slaka leikmenn af velli, færði Baldur á miðjuna og Matthías út á kantinn. Of lítið og of seint Allt annað var að sjá til Valsliðsins í kjölfarið og það byrjaði loksins að spila fótbolta á meðan FH-ingar bökkuðu örlítið og gáfu Valsmönnum meira svæði til að vinna með. Bjarni Ólafur byrjaði loksins að skokka upp völlinn, Guðmundur Ben datt til baka og byrjaði að sækja boltann og þó fyrr hefði verið. Valsmenn fengu að auki loksins trú á því sem þeir voru að gera, fóru einnig í návígi af meiri grimmd en áður. Lengi vel litu þeir út fyrir að ætla að jafna leikinn en sterk vörn FH hélt vel. Bestu færi Vals komu úr langskotum frá Guðmundi sem enduðu í markslá FH-marksins. Það var einfaldlega of lítið og of seint.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Fleiri fréttir Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Sjá meira