Misnota flóttamannasamning Sþ 26. júní 2005 00:01
Langflestir hælisleitenda sem koma hingað til lands eru að misnota flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna. Þetta segir sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli. Oft getur reynst erfitt að finna réttar upplýsingar um viðkomandi þar sem í mörgum tilfellum er gefið upp rangt nafn við komuna til landsins. Embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli rannsakar flest þeirra mála sem koma upp vegna umsókna hælisleitenda um stöðu flóttamanna á Íslandi. Jóhann R. Benediktsson sýslumaður segir rannsókn þessara mála flókna. Nú sé verið að reyna að afla upplýsinga um hver viðkomandi einstaklingur sé og hver saga hans sé. Fortíð þeirra einstaklinga sem hingað koma og sækja um stöðu flóttamanna getur því verið algerlega hulin þegar þeir gefa upp röng nöfn. Jóhann kveðst vissulega hafa áhyggjur af því ef þetta fólk sé komið inn í okkar samfélag án þess að í raun sé vitað hvaða fólk þetta sé. Jóhann segir að aðbúnaður hælisleitenda hérlendis sé mun betri en í öðrum löndum. Yfirleitt séu hælisleitendurnir geymdir í sérstökum búðum og fái ekki að fara frjálsir ferða sinna. Fjölmörg mál koma upp á hverju ári þar sem hælisleitendur gefa upp röng nöfn við komuna til landsins. Jóhann segir að ekki megi gleyma því að í langflestum tilfella séu þetta ekki hælisleitendur heldur sé þetta fólk að misnota flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna og leita sér skjóls í öðru landi á fölskum forsendum. „Vissulega á þetta fólk bágt og það er að leita að betra lífi. Það bara gilda ákveðnar reglur um það hvernig fólk fer milli landa og hvernig þú öðlast réttindi í öðru ríkjum og það er ekki gert með þeim hætti sem flest af þessu fólki er að gera,“ segir Jóhann. Einn þeirra hælisleitenda í Keflavík sem sakaði stjórnvöld um slæma meðferð og seinagang óskaði eftir hæli hér á landi í fyrra. Þegar lögregluyfirvöld fóru að rannsaka mál mannsins lét hann sig hverfa úr landi. Eftir það fréttist svo af manninum í Hollandi þar sem hann óskaði einnig eftir hæli sem flóttamaður. Þegar yfirvöld þar í landi fóru að rannsaka mál hans lék hann sama leikinn og lét sig hverfa. Það var svo í janúar á þessu ári sem hann kom aftur hingað til lands og var hann þá undir öðru nafni en þegar hann kom hingað fyrst. Hann óskaði eftir atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi sem ekki fékkst. Maðurinn hefur nú farið fram á hæli sem flóttamaður hér á landi öðru sinni en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann nú þegar stöðu flóttamanns í Þýskalandi.
Fréttir Innlent Mest lesið „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Kom ekki á teppið Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni Innlent Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fleiri fréttir Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Sjá meira