Öndum að okkur verkfallslofti 21. október 2005 00:01 „
Eftir fundi með atvinnurekendum og ríkisvaldi tel ég helmingslíkur á að samningar fari í sundur," sagði Sigurður Bessason, formaður Eflingar, á ársfundi Alþýðusambands Íslands í gær. Á fundinum voru lögð fram drög að ályktunum þar sem einna mest bar á ályktunum um kjaramál og skattamál. Sigurður var ómyrkur í máli og sagði að sambandið hafi haft rangt fyrir sér með því að gera ráð fyrir að ríkisstjórnin yrði samstíga launafólki í að viðhalda stöðugleika. „Við stöndum nú frammi fyrir verðbólgu sem hvergi var hægt að sjá fyrir þegar kjarasamningar voru gerðir." Í drögum að ályktun um kjaramál segir að ef ekki náist viðunandi lausn við endurskoðun kjarasamninga telji ársfundurinn einsýnt að til uppsagnar samninga muni koma. Frestur til þess að segja upp kjarasamningum rennur út 10. desember en eins og fram kom eftir fund leiðtoga verkalýðsfélaga með forsætisráðherra á þriðjudag verður það í höndum aðildarfélaga ASÍ hvort samningum verði sagt lausum, strax eftir 15. nóvember. „Ég treysti því að ríkisstjórnin skilji sinn vitjunartíma og nálgist þetta mál hratt því að tíminn er naumur og ef menn ætla að ná niðurstöðu í þessu máli þá verður það að gerast á næsta hálfa mánuðinum," sagði Sigurður enn fremur. Undir þessi orð Sigurðar tók næsti ræðumaður, Örn Friðriksson, og sagði: „Við öndum nú að okkur góða verkfallsloftinu. Ég er að tala um það í alvöru. Ef það á að taka mark á okkur er það óhjákvæmilegt að búa sig undir átök í haust. Það þarf ekkert að rifja upp fyrir þessum hópi að við kunnum að taka slag." Í drögum um ályktun um skattamál skorar fundurinn á ríkisstjórnina og Alþingi að gæta hagsmuna láglaunafólks. „Forgangsverkefnin eru að lækka virðisaukaskatt á matvæli, hraða hækkun barnabóta og taka upp lægra skattþrep á lægri tekjur," segir í drögunum. Hugmyndin er að lækka matarskattinn úr fjórtán prósentum niður í sjö. Til þess að vega upp á móti er lagt til að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður úr tíu prósentum í tuttugu.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Sjá meira