Innlent

Dregið úr verðhækkunum

Dregið hefur úr verðhækkunum og þar með þenslu á fasteignamarkaði. Flest virðist benda til þess að sú eftirspurnaralda sem leystist úr læðingi í kjölfar innkomu bankanna á fasteignalánasmarkaðinn í fyrra sé að mestu gengin yfir. Hækkunarhraði fasteigna hefur farið úr um fjórum prósentum á mánuði síðastliðið vor niður í eitt prósent, en í september síðastliðnum hækkaði fasteignaverð um 0,9 prósent. Hækkun fasteignaverðs mun að þessu sinni leiða til um 0,15 prósenta hækkunar á vísitölu neysluverðs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×