Innlent

Nýr vegur um Kolgrafarfjörð

Nýr vegur um Kolgrafarfjörð á Snæfellsnesi verður opnaður formlega í dag. Við athöfn klukkan fjögur í dag mun Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, sem býr einmitt á Snæfellsnesi, klippa á borða. Nýi vegurinn, sem leysir af hólmi eldri veg er lá fyrir fjörð, byrjar við heimreið að bænum Berserkseyri og liggur út á Kolgrafaodda, yfir Kolgrafafjörð, um Hjarðarbólsodda og tengist núverandi Snæfellsnesvegi í námunda við vegamót Framsveitarvegar í Grundarfirði. Með nýjum vegi yfir Kolgrafafjörð styttist leiðin á norðanverðu nesinu um sex kílómetra auk þess sem nú verður komið bundið slitlag á alla leiðina milli þéttbýlisstaðanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×