Lögmaður í hálfs árs fangelsi 19. nóvember 2005 07:45 Lögmaður verður að sitja af sér hálfs árs fangelsi vegna brota sem framin voru í starfi.
Hæstiréttur mildaði um tvo mánuði refsingu lögmanns sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í ársbyrjun í átta mánaða fangelsi. Fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi yfir konu sem ákærð var með lögmanninum fyrir skilasvik var óbreyttur. Konan og lögmaðurinn voru ákærð fyrir skilasvik með því að hafa gert fjárnám í fasteign sem var hluti af þrotabúi eiginmanns konunnar, á grundvelli tryggingavíxils upp á 5 milljónir króna. Krafa lögmannsins á hendur þeim hjónum var þó mun lægri. Tvö fjárnám voru gerð í fasteigninni, annað að beiðni lögmannsins og hitt að beiðni þrotabúsins. Fjárnám lögmannsins og eiginkonu þrotamannsins hlaut forgang, en skiptastjóri þrotabúsins lagði svo í framhaldinu fram kæru vegna málsins. Bú mannsins var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2000, en fjárnámsbeiðnirnar voru lagðar fram sumarið 2002. Við rannsókn lögreglu á málinu árin 2003 og 2004 var meðal annars gerð húsleit á lögmannsstofu lögmannsins. Taldi Hæstiréttur ljóst að hann hefði vísvitandi hagrætt dagsetningum á víxli og greiðsluáskorun til að verða á undan annarri aðför í fasteign konunnar. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Garðar Gíslason og Guðrún Erlendsdóttir, síðasta fimmtudag. Refsing konunnar var skilorðsbundin í tvö ár, en ekki þótti efni til að skilorðsbinda refsingu lögmannsins. Í Héraðsdómi yfir honum var vísað til þess að hann hefði brotið á mikilisverðum starfsskyldum og hafi brot hans verið sérlega ámælisvert. Hvorugt hefur áður sætt refsingu.
Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Sjá meira