Kæruleysi að hætti Hómers Simpson 31. maí 2005 00:01
Breskir ráðamenn líta lekann á hágeislavirkum efnum í Thorp-kjarnorkuendurvinnslustöðinni í Sellafield sem uppgötvaðist í apríl mjög alvarlegum augum. Vera má að dagar stöðvarinnar séu taldir. Breska dagblaðið The Independent on Sunday rakti í gær niðurstöður leyniskýrslu um lekann og viðbrögð ráðamanna við henni. Málmþreyta í leiðslu er sögð orsök þess að 83.000 lítrar af geislavirkum vökva láku í sérstaka safnþró. Starfsmenn eru jafnframt harðlega gagnrýndir fyrir að hafa ekki uppgötvað lekann fyrr en mörgum mánuðum eftir að hann hófst. "Þetta eru mistök sem einungis Hómer Simpson virðist hafa verið fær um að gera," sagði David Willets, viðskiptaráðherra í skuggaráðuneyti íhaldsmanna. Stöðin hefur verið lokuð síðan óhappsins varð vart og í einkasamtölum við blaðamenn segjast háttsettir embættismenn ekki reikna með að hún verði opnuð framar. Hreinsun svæðisins verður hins vegar afar kostnaðarsöm og einnig þarf að flytja þann kjarnorkuúrgang sem enn á eftir að vinna aftur til upprunalanda sinna. Samkvæmt mælikvarða Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar telst atvikið þriðju gráðu slys - alvarlegt atvik - en sjöunda gráðan er sú hæsta. Síðasta slysið í Bretlandi af þessari gráðu varð í Sellafield árið 1992. Sex ár eru liðin síðan fjórðu gráðu slys varð árið 1999 en þá dóu þrír verkamenn í japönsku kjarnorkuveri eftir að hafa blandað kjarnorkueldsneyti í fötu.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira