Innlent

NFS fer í loftið á föstudag

Næsta föstudag munu 365 miðlar efna til byltingar í íslensku sjónvarpi. Þá hefjast útsendingar frá nýrri sjónvarpsstöð, NFS eða Nýju fréttastöðinni, sem mun svala fréttaþorsta Íslendinga frá morgni til miðnættis með ýtarlegri hætti en áður hefur tíðkast á Íslandi.

NFS ætlar sér að vera til staðar alltaf, alls staðar og flytja glóðvolgar fréttir, innlendar sem erlendar, þegar þær gerast frá sjö á morgnana til ellefu á kvöldin á heila og hálfa tímanum. Hugmyndin er að færa það sem tíðkast hefur í útvarpi inní sjónvarpið og fyrirmyndin sótt til helstu fréttamiðla veraldar.

Uppistaðan á NFS verður íslensk dagskrárgerð og fréttum og öllu því sem sem áhrif hefur á hið daglega líf okkar, eins og veður og vindar, samgöngur og íþróttir, verður gerð ýtarlegri skil en áður hefur tíðkast hérlendis. Með NFS á fréttaflutningur að verða hversdagslegri, laus við allt smjaður og smink. Og myndverið hvaðan afurðinni verður varpað í loftið er að verða klárt.

Róbert Marshall þetta vera fréttastöð sem sendir út frá klukkan sjö á morgnana til ellefu á kvöldin. Ef dregnir eru frá erlendir fréttaskýringarþættir þá dekkar innlend dagskrá um það bil 14 klukkutíma á hverjum sólarhring. Róbert segir myndverið vera útsendingarmyndver en ekki upptökumyndver. Sem þýðir að hægt á að vera að breyta bakgrunnum með skjótum og afgerandi hætti sem fari eftir þeim þætti sem sýndur er hverju sinni. Róbert sagði að nauðsynlegt yrði að nota digital myndlykil til að ná dagskránni. Þeir sem ekki eru með digital afruglara geta fengið sér hann og borgað 500 króna leigugjald á mánuði, sem er leigugjald afruglarans.

Starfsemi NFS verður öll undir einu þaki í húsnæði 365 miðla við Skaftahlíð 24 og verða starfsmenn um níutíu talsins, þar af nær helmingur frétta- og blaðamenn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×