Innlent

Tilkynnt um sameiginlegt framboð í dag

MYND/Vísir

Upp úr hádegi í dag mun koma í ljós hvort verði af sameiginlegu framboði Samfylkingarmanna og Framsóknarmanna til bæjarstjórnar í Reykjanesbæ.

Félagsfundir beggja flokka fóru fram í gærkvöldi og var fyrirfram búist við því að félagsmenn myndu samþykkja tillögu um sameiginlegt framboð flokkana en lítill málefnaágreiningur var á milli flokkana.

Framsóknarmenn eiga einn mann í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og Samfylking fjóra og sitja saman í minnihluta í sveitarfélaginu. Sjálfstæðismenn halda þar um stjórnartaumana með meirihluta sex bæjarfulltrúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×