Sigþór lék handarbrotinn 30. júní 2005 00:01
Valsarinn Sigþór Júlíusson komst í hann krappann í leik gegn KR í fyrrakvöld er hann braut bein í handabaki í fyrri hálfleik. "Ég dett illa á höndina eftir návígi í lok fyrri hálfleiks og brýt bein í handabakinu. Ég fór í skoðun í dag og fékk spelku sem ég vonast til að geta leikið með. En ég lét lækninn skoða þetta í hálfleiknum og hann batt fast um höndina þannig að ég gat klárað leikinn. Það var reyndar allt í lagi að klára leikinn enda lenti ég ekkert í neinu slæmu atviki í seinni hálfleik. Það er þó vissulega erfitt að spila með aðra höndina brotna en það er samt ekkert sem maður hugsar um á meðan leiknum stendur. Ég hefði látið Willum vita ef ég myndi ekki treysta mér áfram en það gekk allt vel og ég þurfti aldrei að biðja um skiptingu," segir Sigþór. Hann ætlar að láta það ráðast á morgun hvort hann treysti sér til að leika gegn Þrótti annað kvöld.Sigþór segir að hann hefði örugglega haldið áfram sama hver andstæðingurinn væri. "En það skemmdi ekkert fyrir að það var KR. Ég vildi alls ekki fara út af í svona leik. Leikir þessara liða eru líka alltaf stórir og maður vill ekki missa af þeim," segir Sigþór sem lék í sjö ár með KR áður en hann skipti yfir í Val fyrir núverandi tímabil. Hann reyndar lék með Val í tvö ár áður en hann gekk til liðs við KR. En hann segir að hafi verið gott að vinna sigur á gömlu félögunum. "En það er auðvitað gott að vinna alla leiki. Við urðum líka að fá sigurleik nú eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum til að koma okkur aftur af stað."Forysta FH í Landsbankadeildinni er því enn sex stig en hefði verið níu ef Valur hefði ekki unnið KR í gær. "Jú, það var auðvitað gott að forskot þeirra hafi ekki aukist en við þurfum fyrst og fremst að hugsa um okkar leik. Ef við höldum áfram að hala inn stigunum verðum við ánægðir og það væri ekki verra ef FH-ingar misstíga sig. Það segir sig sjálft að mótið er ónýtt ef þeir fá að komast upp með að vinna alla leiki."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Íslenski boltinn Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Fleiri fréttir „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Þetta er svo asnalegt hjá Kane Ármann yngir upp um þrjátíu ár Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Arnar velur tvo landsliðshópa: Viktor Bjarki fær kallið Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Sjá meira