Eyjabyggð sprengir gatnakerfið 6. júní 2005 00:01
Í sex ára gamalli skýrslu borgarverkfræðings og Borgarskipulags Reykjavíkur er talið óraunhæft að stofna til 20 þúsund manna byggðar á uppfyllingum úti af Örfirisey og á öðrum uppfyllingum í grennd við miðborgina. Í umferðarspá sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen vann fyrir borgaryfirvöld koma fram efasemdir um umferðarálag. "Hugmynd um 20 til 30 þúsund manna byggð með vegtengingu yfir hafnarmynni gömlu hafnarinnar þykir ekki raunhæf." Helsta niðurstaða verkfræðistofunnar er að 20 þúsund manna byggð verði ekki reist án þess að til komi miklar breytingar á núverandi gatnakerfi, sem sumar hverjar sé mjög erfitt að framkvæma. Skýrslan var unnin að tillögu borgarráðsfulltrúa Reykjavíkurlistans í febrúar 1999 þar sem beðið var um athugun á fimm mismunandi hugmyndum um landfyllingar til þéttingar byggðar. Landfyllingarkostnaður var talinn geta numið allt að 20 prósentum af byggingarkostnaði íbúðar en færi lækkandi með þéttari byggð. Því var talið ljóst að kostnaður við fyllingar yrði verulegur hluti íbúðaverðs og þar af leiðandi yrðu þær mun dýrari en á öðrum svæðum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Jóna Gróa Sigurðardóttir, borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, létu færa til bókar á fundi borgarráðs 20. júlí árið 1999 að athugun borgarverkfræðings og Borgarskipulags sýndi að tillögurnar væru í flestum tilvikum algerlega óraunhæfar. Hugmyndir þær sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins lagði fram í nýliðnum mánuði gera ráð fyrir allt að fjórfalt meiri byggð á Örfiriseyjarsvæðinu en talið var raunhæft í umræddri skýrslu. Í skýrslu VST er talið vel mögulegt að koma fyrir fimm þúsund manna byggð á landfyllingum án verulegra vandamála. Það megi meðal annars gera með breikkun Mýrargötu í fjórar akreinar. Í áðurgreindri bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins var talið brýnt að kanna áhrif byggðar í grennd við olíuhöfnina í Örfirisey og breikkun Mýrargötu í fjórar akreinar vegna fimm þúsund manna byggðar.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira