Innlent

18 ára stúlka vann ökuritakeppni

Átján ára stúlka úr Vogunum vann góðaksturskeppni Vís með fyrirmyndarakstri sem skráður var með ökurita í þrjá mánuði. Hún var í hópi ungmenna sem reyndist standa sig betur en starfsmenn fyrirtækja í sambærilegum verkefnum. Sextán ungmenni luku ökuritaverkefni á vegum Vátryggingafélags Íslands nýverið. Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnar- og öryggisfulltrúi VÍS, segir niðurstöðurnar hjá ungmennunum hafa farið fram úr björtustu vonum. Meðaleinkunn hópsins var núll komma einn á meðan hún var 0,2 til 0,3 hjá öðrum hópum fyrirtækja sem tekið hafa þátt í svona verkefnum. En þess ber að geta að því lægri sem einkunnin er því betri er árangurinn. Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir stóð sig best ungmennanna og fékk að launum ferð í ökuskóla BMW í Þýskalandi. Tinna segist iðulega hafa orðið fyrir aðkasti annarra ökumanna þegar hún ók um göturnar á löglegum hraða, þar sem fáir hafi virt hámarkshraða. Hámarkshraði Tinnu á meðan á verkefninu stóð var 88 kílómetrar á klukkustund. Sá sem hraðast ók hins vegar af ungmennunum, fór upp í 142 kílómetra hraða. Sá og einn annar skáru sig úr sextán manna hópnum og hækkuðu meðaltalið því hinir fjórtán stóðu sig mjög vel.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×