Evópuþingið hyggst rannsaka fangaflug CIA 15. desember 2005 19:45
Evrópuþingið ákvað í dag að koma á fót nefnd til að rannsaka fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar í Evrópu. Tillaga þessa efnis var samþykkt með 359 atkvæðum gegn 127. Megintilgangur rannsóknarinnar verður að kanna hvað sé hæft í ásökunum um að bandaríska leyniþjónustan hafi starfrækt fangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn í Póllandi og Rúmeníu. Enginn vafi leikur lengur á því að bandaríska leyniþjónustan hefur notað flugvélar eins og þessa, sem lenti á Reykjavíkurflugvelli í haust, til að flytja grunaða hryðjuverkamenn á leynilega áfangastaði. Enn er ekki vitað hvað er hæft í ásökunum um að leynifangelsin hafi verið í Póllandi og Rúmeníu. Tillaga um að koma á laggirnar rannsóknarnefnd til að fara ofan í málið var samþykkt með 359 atkvæðum gegn 127. Evrópuráðið, sem nær einnig til annarra Evrópuríkja en eru í ESB, er sömuleiðis að rannsaka málið. Á þýska þinginu var í dag rætt mál þýsks ríkisborgara, Khaled Al-Masris. Bandaríska leyniþjónustan rændi honum í Makedóníu, setti hann í fangelsi í Afganistan en skilaði honum svo af sér mörgum mánuðum síðar, og reyndar mörgum mánuðum eftir að ljóst var orðið að hann væri á engan hátt tengdur neinum hryðjuverkasamtökum. Frank-Walter Steinmeier utanríkisráðherra sagði sambandsþinginu að þýsk stjórnvöld hefðu ekkert vitað um ránið á Masri fyrr en honum hafði verið sleppt, jafn fyrirvaralaust og hann hvarf.
Erlent Fréttir Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira