Tíðni ungbarnadauða í heiminum lægst á Íslandi 14. desember 2005 12:16 Börn í Úganda í Afríku. MYND/Reuters
Tíðni ungbarnadauða í heiminum er lægst á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem birt var í morgun. Hundruð milljóna barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum. Í skýrslunni er fjallað um aðstæður barna víða um heim sem margar hverjar eru vægast sagt afar slæmar. Í fimmtíu vanþróuðustu löndum heims deyr til að mynda eitt af hverjum tíu börnum fyrir eins árs aldur, og eitt af hverjum sex nær ekki fimm ára aldri. Þá er þriðjungur barna í þessum löndum nokkuð eða töluvert undir eðlilegri þyngd. 8,4 milljónir barna vinna við verstu hugsanlegu aðstæður, þar á meðal við vændi og í þrælavinnu. Nærri tvær milljónir barna eru notuð í kynlífsiðnaðinum þar sem þau eru kerfisbundið misnotuð og beitt ofbeldi. Samkvæmt skýrslunni er Ísland, ásamt Singapúr, með lægstu tíðni ungbarnadauða, þ.e. barna undir 5 ára aldri, eða þrjú dauðsföll af hverjum þúsund lifandi fæðingum. Efst á blaði er hins vegar Síerra Leóne þar sem 283 af hverjum þúsund börnum deyr fyrir fimm ára aldur. Listinn nær yfir öll lönd heims, eða 192 talsins. Ísland er einnig með eina lægstu tíðni smábarnadauða, eða barna undir eins árs aldri, þar sem eru tvö dauðsföll á hverja þúsund lifandi fæðingar. Í skýrslunni kemur fram að tíðni ungbarnadauða hér á landi hefur lækkað um 6,1 prósent að meðaltali á ári frá árinu 1990 og telst það nokkuð mikil lækkun. Gera má ráð fyrir að lækkunin hafi verið enn hraðari fyrr á öldum þar sem tíðni ungbarnadauða á Íslandi var ein sú hæsta fyrir um 150 árum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Sýndu mynd af líki hins látna fyrir slysni Ragnar Þór segist ekki hafa haft neitt með skilaboðin til Guðmundar Inga að gera Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent Sjá meira