Tveir flokkar og hærri vextir 23. nóvember 2005 10:11 Útlán Íbúðalánasjóðs breyttust í dag. MYND/Vísir
Íbúðalánasjóður býður upp á tvo lánaflokka frá og með deginum í dag. Fólk getur valið þau lán sem hafa staðið til boða hingað til og bera hér eftir 4,6 prósenta vexti sem er hækkun upp á 45 punkta, eða lán sem ekki er hægt að greiða upp nema gegn sérstakri uppgreiðsluþóknun og þá eru vextirnir 4,35 prósent. Breytingin hefur verið lengi í undirbúningi. Þegar starfsmenn Íbúðalánasjóðs fóru að kanna möguleika á þessu fyrir nokkrum mánuðum stóðu vonir þeirra til að lækka mætti vextina niður fyrir fjögur prósent. Breytingin tafðist vegna óvissu um heimildir og í kjölfar vaxtahækkana að undanförnu varð niðurstaðan að vextirnir lækka ekki heldur hækka þeir minna en þeir hefðu ella gert. Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir helstu breytinguna þá að fólk geti valið milli þess að þiggja lán þar sem ekki er gert ráð fyrir að hægt sé að greiða það upp á lánstímabilinu. Þá eru vextirnir 4,35 prósent. Vilji fólk hins vegar geta greitt lán upp á lánstímabilinu getur það valið leið sem opnar fyrir þann möguleika en þá eru vextirnir nokkuð hærri, eða 4,6 prósent. Velji fólk fyrri valkostinn, en vill síðar greiða upp lánið að hluta eða í heild verður að greiða uppgreiðslugjald sem er þá reiknað út fyrir hvert og eitt lán. Er þá miðað við vexti af láninu sem greiða á niður og vöxtum á þeim tíma sem lánið er greitt niður. Bankarnir hafa lengi kvartað undan samkeppni frá Íbúðalánasjóði. Með breytingunni getur Íbúðalánasjóður hvort tveggja boðið lægri, eða sambærilega vexti og bankarnir, eða lán án uppgreiðsluþóknunar en þá með hærri vöxtum. Guðmundur telur þó að þetta þýði ekki að samkeppni Íbúðalánasjóðs við bankana harðni. Kjör viðskiptavina hjá sjóðnum hafi verið betri en hjá bönkunum hingað til en nú verði þau sambærilegri því sem bankarnir bjóði, valkostirnir verði þó fleiri. Sparisjóðirnir hækkuðu vexti sína í 4,35 prósent í morgun í kjölfar ákvörðunar Íbúðalánasjóðs. Í þarsíðustu viku hækkaði Landsbankinn vexti sína í 4,45 prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Sjá meira