Yfir 300 milljónir fyrir umbúðirnar 22. nóvember 2005 10:00 Greiða þarf úrvinnslugjald af umbúðum frá áramótum, nær sjö þúsund tonnum af plasti og 27 þúsund tonnum af pappír og pappa.
Fyrirtæki landsins hefja um næstu áramót greiðslu úrvinnslugjald fyrir allar, plast-, pappa- og pappírsumbúðir utan um vörur þeirra. Búist er við að gjaldið nemi um 320 til 340 milljónum króna á ári. Það er ekkert smáræði, allt sorpið sem fellur til á ári hverju, ekki síst umbúðir utan af neyslu almennings. Og frá og með næsta ári þarf að borga gjald af umbúðunum til að standa straum af kostnaði við endurvinnslu og endurnýtingu þeirra. Fyrirtæki landsins eiga frá áramótum að greiða úrvinnslugjald af öllum umbúðum um þær vörur sem þau selja hérlendis. Alls er gert ráð fyrir að rukkað verði úrvinnslugjald fyrir þrjátíu og fimm þúsund tonn af umbúðum, að stærstum hluta pappír og pappa. Heildarinnheimtan er áætluð á bilinu 320 til 340 milljónir króna, eða rúmar þúsund krónur á hvert mannsbarn. Peningarnir sem safnast með innheimtu úrvinnslugjalds verða notaðir til að greiða fyrir söfnun umbúða eftir notkun, svo sem á endurvinnslustöðvum, og flutning þeirra í endurvinnslu eða endurnýtingu. Í mars á næsta ári verður hafin söfnun plastumbúða til endurnýtingar, allt frá plasti utan af brettum niður í umbúðirnar af áleggi landsmanna. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að úrvinnslugjaldið sé ekki það hátt að það hafi verulegan kostnaðarauka í för með sér fyrir fyrirtækin. Hann kveðst vona að gjaldið fari ekki út í verðlagið, lendi með öðrum orðum ekki á neytendum. Lögin sem úrvinnslugjaldið byggir á eru reyndar ekki enn afgreidd. Lagafrumvarp þar um var tekið til fyrstu umræðu á þingi fyrr í haust og umhverfismálanefnd Alþingis fjallaði um það á fundi sínum í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, formaður nefndarinnar, segir allt útlit fyrir að frumvarpið verði að lögum fyrir áramót.
Fréttir Innlent Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira