Greiddu fyrir Brim með leigu veiðiheimilda 18. nóvember 2005 21:20 Harðbakur, einn togara útgerðarfélagsins Brims. MYND/KK
Kaup Guðmundar Kristjánsson útgerðarmanns á útgerðarfélaginu Brimi í ársbyrjun 2004 voru fjármögnuð með því að leigja og selja burt veiðiheimildir í sameign þjóðarinnar segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingar.16 þúsund þorskígildistonn voru flutt frá Akureyri síðustu tvo fiskveiðiár og tíu þúsund frá Vestmannaeyjum. Á sama tíma leigðu útgerðir á Grundarfirði og í Garði rúm 5.000 tonn til sín að því er fram kemur í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingar.Samherji leigði mestar veiðiheimildir frá sér, tæp tíu þúsund tonn, en næst komu Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, Brim, HB Grandi og Skinney Þinganes. Nesfiskur fékk mestan kvóta til sín, tæp fimm þúsund tonn, en næst komu Fiskvinnslan Kambur og Sæból.Jóhann hefur áður lagt fram fyrirspurnir um tilfærslu veiðiheimilda milli útgerða og sveitarfélaga. "Tilgangurinn hefur verið sá að sýna fram á hið raunverulega veiðigjald, hvaða fyrirtæki, hvaða byggðir eru að greiða það," segir Jóhann og segir flutning veiðiheimilda sýna hvaða fyrirtæki þurfa að greiða öðrum útvegsmönnum fyrir aðgang að auðlindinni og hvaða útgerðir hafi tekjur af að leigja eða selja frá sér veiðiheimildir. "Veiðigjaldið sem útgerðarmenn kvarta undan er túkall á þorskkílóið en við erum að tala um hundraðkall eða meira á þorskkílóið þegar þeir eru að selja aðgang að auðlindunum."Jóhann segir jafnframt augljóst af svari sjávarútvegsráðherra að kaupverðið á Brim hafi verið greitt með sölu og leigu veiðiheimilda. Hann vísar til þess að Brim, Útgerðarfélagið Tjaldur og K G fiskverkun, sem öll eru í sömu eigu, framseldu tæplega átta þúsund þorskígildistonna veiðiheimildir á síðustu tveimur fiskvieiðiárum.Guðmundur Kristjánsson, segir þetta ekki rétt hjá Jóhanni. Félög hans hafi ekki leigt frá sér veiðiheimildir til að borga fyrir Brim. Sum ár veiði félög í hans mikið og leigi þá til sín veiðiheimildir, önnur ár leigi þau frá sér heimildir og veiði minna.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira