Innlent

Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir endurskoðun samnings

Frá Akranesi
Frá Akranesi MYND/Vísir

Formaður Verkalýðsfélags Akraness gagnrýnir líkt og Samiðn samning Samtaka Atvinnulífs og ASÍ frá í gær. Hann segir skiptar skoðanir vera um samningin og að eðlilegra hefði verið að kynna tillögurnar aðildarfélögum áður en skrifað var undir. Miðstjórn Samiðnar gagnrýnir harðlega samningin sem forystumenn Alþýðusambandsins undirrituðu við Samtök Atvinnulífs í gær.

Miðstjórnin bendir á að í landinu sé mikið góðæri en um 40% launþega búi við kaupmáttarskerðingu á sama tíma og stórir hópar eru að taka til sín miklar launahækkanir. Í sama streng tekur formaður Verkalýðsfélags Akraness, Vilhjálmur Birgisson, sem segir að þó fagna megi einstaka áföngum í samningnum, eins og hlut ríkisins í þeim, þá hefði mátt gera mun betur. Hann segir að af tveimur forsendum kjarasamningsins sem nú var endurskoðaður sé annað atriðið, það er að samningarnir yrðu almennt stefnumarkandi fyrir aðra samninga á tímanum, brostið. Því séu kostnaðaráhrif samningsins, sem gera ráð fyrir 15,8% hækkun á samningstímanum of lág miðað við hópa eins og kennara og fleiri sem náð hafi fram samningum sem beri allt að 27%.

Vilhjálmur segir að sér hefði þótt betra ef samningurinn sem var undirritaður í gær hefði verið lagður fyrir aðildarfélögin áður en hann var undirritaður. Hann vill þó ekki ganga svo langt að segja að forsvarsmenn ASÍ hafi farið frjálslega með umboð sitt. Vilhjálmur segir ljóst af samtölum sínum við aðra formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins að skiptar skoðanir séu um samningin. Formenn sambandsins funda á morgun og láta í framhaldinu í ljós álit sitt en ekki verður kosið um samningin þar sem um er að ræða endurskoðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×