Ráðmenn fengu það óþvegið 15. nóvember 2005 22:14
Skattrannsóknarstjóri og ýmsir íslenskir ráðamenn fengu það óþvegið á blaðamannafundi þar sem Jón Ólafsson athafnamaður og Einar Kárason rithöfundur kynntu nýútkomna bók um ævi athafnamannsins og auðmannsins umdeilda frá Keflavík. Jónsbók hin síðari er komin út og kannski ekki hin síðri. EinarKárason fjallar um ævi Jóns Ólafssonar athafnamanns sem ekki hefur alltaf verið vinur ríkisins og á fundi þar sem bókin var kynnt í dag sveif andi ljóðs Steins Steinars um Negus Negusi yfir vötnunum.Í hreinskilni sagt eru allir óvinir ríkisins sem ekki hlusta á Negus Negusi tala. „Ég er Negus Negusi," sagði Negus Negusi, „ég er Negus Negusi búlúlala." Og kannski er það kjarninn í Jónsbók að Jón hlustaði ekki alltaf á Negus Negusi.Aðspurður hvernig honum fyndist að vera ekki lengur óvinur ríkisins númer eitt sagði Jón í léttum tón að það væri alveg glatað. Þetta væri gífurleg tilvistarkreppa. „Ég hef aldrei upplifað mig sem óvin ríkisins númer eitt. Ég held að þetta segi miklu meira um þá aðila sem hafa leyft sér að haga sér svona gagnvart mér og mörgum öðrum. Ég held að þeir séu í tilvistarkreppu og þetta sýnir hvað þeir eiga lítil og vesæl vopn til að ráðast á menn, " sagði Jón. Hann bætti við að það væri stórfurðulegt að það sem hann hafi gert sem krakki og unglingur skyldi hafa verið notað gegn honum í öll þessi ár. Í bókinni er vitnað í Einar Benediktsson þar sem sagt er að þeir sem reyni að brjótast áfram í samfélaginu þurfi oft að beygja sig undir hið æðra vald. Aðspurður hvort honum fyndist það vera hans saga í íslensku athafnalífi sagði Jón að orð Einars ættu við nákvæmlega réttum 100 árum seinna. Aðspurður hvað hann telji að hafi valdið því að þeir sem réðu í stjórnmálum hafi snúist gegn honum segist Jón ekki vita það. „Ætli þeir hafi ekki bara verið hræddir. Þeir sáu mig fara hraðar af stað en þeir höfðu gert og voru kannski ekki sáttir við það að einhver drengur úr Keflavík sem var ættlaus gæti gert þetta sem ég var að gera," segir Jón. Aðspurður hvort ráðandi öfl í Valhöll hafi reynt að hafa áhrif á skipan sjónvarpsstjóra á Stöð 2 sagði Jón að það væri þekkt að þegar hann hafi gengið inn í Stöð 2 þá hafi hann fengið mjög skýr skilaboð að Friðrik Friðriksson ætti að verða sjónvarpsstjóri. Því hafi hann hafnað. „Þeir kunna illa mótlæti, þessi menn," segir Jón. Nú gaf Jón í skyn á kynningarfundinum í dag að skattrannsóknarstjóri hefði gengið erindatil að klekkja áhonum. Jón segist ekki hafa verið að segja það heldur að hann hafi fengið símtal áður en rannsókn hafi hafist þar sem honum hefði verið sagt það að það hefði verið búið að ákveða það að stofnunin fengi tvisvar sinnum 20 milljónir í auknar fjárveitingar gegn því að skattrannsóknastjóri færi í mál hans og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs. Hann hafi látið Jón Ásgeir vita af þessu á sínum tíma og staðreyndin liggi fyrir, mál þeirra beggja hafi verið rannsökuð og gögn staðfesti það að skattrannsóknastjóri hafi fengið fjárveitinguna. Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri vildi segja eftirfarandi um um málið:„Ég hafði ekkert samband við Davíð Oddsson á þessum árum. Hitti hann fyrst eftir að rannsókn lauk og þá vegna annars máls. Stofnunin hefur engar fjárveitingar fengið sem skilyrtar hafa verið rannsóknum á tilteknum málum."
Fréttir Innlent Mest lesið Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Fleiri fréttir Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Gæti stefnt í þungavigtarslag um varaformannsembættið Atvinnuþátttaka innflytjenda meiri en Íslendinga en fjárhagsstaða verri Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Framsóknarflokkurinn mælist aftur inni Áttatíu starfsmenn í biðstöðu og HM-hópur Íslands Viðreisn býður fram undir eigin merkjum í Árborg Ekið á hjólreiðamann og hann fluttur á bráðamóttöku Val á þingflokksformanni bíður betri tíma Tvö vilja byggja Fossvogsbrú en bæði yfir áætluðum kostnaði Tálbeitan ákærð fyrir rangt brot Ekki sama manneskjan eftir hörmungarnar á Gasa Skorar á ríkisstjórnina að fjármagna íslenskunám Eggert Benedikt settur forstjóri Hafró Samtök „gamalla karla“ sem sumum finnst „kúl“ Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Sjá meira