Jólastemmning á Akureyri 15. nóvember 2005 21:39
Þótt nóvember sé ekki nema rétt hálfnaður, eru sumir Akureyringar komnir í jólaskap svo um munar. Bæjarstarfsmenn eru byrjaðir að skreyta miðbæinn og einstaka skreytingar eru komnar við íbúðarhús. Ein umfangsmesta og tígulegasta jólaskreytingin á Akureyri ár hvert er skreytingin við heimili Guðnýjar Jónsdóttur og Ragnars Sverrissonar, kaupmanns í JMJ. Alls eru 50 jólaseríur í jólaskreytingunni í ár og samanlagt eru þær hátt í kílómetri að lengd. Nánast öll tré í garði þeirra hjóna eru ljósum prýdd og er hver einasta pera vandlega hnýtt við trjágreinarnar. Ljósunum fjölgar eftir því sem trén vaxa en í ár eru 2000 perur í skreytingunni. Jólaskreytingahefð fjölskyldunnar í Áshlíð 11 nær 15 ár aftur í tímann. Fyrstu árin dugði að nota lítinn eldhúskoll til að koma jólaseríunum upp í efstu trjátoppana en í ár notast þau við stórvirk vinnutæki. Ragnar segir að þau noti körfulyftur eins og málarar og við hærri trén sé notaður kranabíll. Öllum seríunum fylgir straumbreytir og lét Ragnar smíða 20 vatnshelda kassa undir þá og dreifast þeir um lóðina. Aðspurður hversu langan tíma taki að skapa þessa jólaveröld segir Ragnar að í ár hafi þetta tekið þrjá daga, en unnið hafi verið frá því snemma á morgnana og langt fram á kvöld. Áshlíðin á Akureyri er ekki í alfararleið en eftir að skreytingin er komin upp eykst umferðarþungi um götuna til muna. Stór hluti bæjarbúa gerir sér ferð að heimili Ragnars og Guðnýjar til þess að berja dýrðina augum og eru dæmi um að þangað komi rútur með heilu leikskóladeildunum. Aðspurður hvort hann hafi reiknað út hvað hann þurfi að greiða Norðurorku fyrir lýsinguna neitar Ragnar því og segir þetta ekki snúast um peninga heldur gleði og gaman. Hann segist aðspurður enn ekki hafa fengið jólakort frá Norðurorku.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira