Innlent

Ágóði rokktónleika rennur til UNICEF

Alls söfnuðust hundrað þúsund krónur til styrktar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Rokkveislu sem nemendafélag Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu stóð fyrir um helgina. Nemendur vonast til þess að söfnunarféð nýtist börnum í neyð víða um heim. Birgir Fannar Reynisson, formaður nemendafélagsins, segir að skemmtunin hafi heppnast vel en alls voru 13 hljómsveitir sem spiluðu á Rokkveislunni fyrir um 200 gesti. Hann segir skemmtunina hafa farið vel fram hann hefði þó viljað sjá fleiri gesti. Nemendafélagið ákvað fyrr í haust að halda tónleika til styrktar UNICEF og gefa 40% ágóðans til samtakanna. 60% ágóðans rennur til nemendafélagsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×